Hafnsögumaður eða lóðs er maður sem hefur það hlutverk að veita skipum leiðsögn um hættuleg eða þröng farvötn, eins og hafnir, ár, skurði og vötn.
Hafnsögumenn nýta sér nákvæma þekkingu á staðháttum við leiðsögnina. Í sumum höfnum er hafnsöguskylda, þ.e. skipum er skylt að nýta sér þjónustu hafnsögumanna þegar siglt er til hafnar eða frá. Hafnsöguskylda gildir yfirleitt alltaf þegar siglt er með hættulegan farm. Hafnsögumaður um borð leysir skipstjóra ekki frá þeirri skyldu að tryggja öryggi skipsins.
Hafnsögubátur flytur hafnsögumann um borð í skip, sækir hann og siglir stundum með skipinu um hafsvæðið.
Á Íslandi þarf hafnsögumaður að hafa lokið 2. stigs skipstjórnarprófi og sérstöku hafnsögunámskeiði.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hafnsögumaður, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.