Herbert George Wells (21.
september 1866 - 13. ágúst 1946) var breskur rithöfundur sem er þekktastur fyrir vísindaskáldsögur sínar. Skrif hans spönnuðu þó nánast alla flokka sem ritverk flokkast í. Hann var gríðarlega afkastamikill rithöfundur og rit hans skipta fleiri tugum. Flest verk hans hafa einhvern félagslegan eða pólitískan boðskap. Hann var sósíalisti og er oft nefndur, ásamt Jules Verne og Hugo Gernsback, „faðir vísindaskáldsögunnar“.
Herbert George Wells | |
---|---|
Fæddur | Herbert George Wells 21. september 1866 |
Dáinn | 13. ágúst 1946 (79 ára) London, Englandi |
Störf | Rithöfundur, kennari, sagnfræðingur, blaðamaður |
Þekktasta bók hans er án efa Innrásin frá Mars. Söngleikur sem sló í gegn og tvær stórmyndir hafa verið gerðar eftir henni. Önnur fræg verk Wells eru Tímavélin, Ósýnilegi maðurinn og Eyja dr. Moreau. Eftir öllum þessum verkum hafa verið gerðar fleiri en ein kvikmynd.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article H. G. Wells, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.