Fyrstu persónu skotleikur á ensku skammstafað FPS (First Person Shooter) er skotleikur þar sem spilarinn sér leikjaheiminn frá sjónarhorni leikjapersónunnar.
Fyrstu persónu skotleikir hafa verið mjög vinsælir frá því að byltingarkenndir leikir eins og Wolfenstein 3D og Doom komu út. Þeir hafa einnig verið þeir leikir sem hvað mest hafa notast við þrívíddargrafík og netspilun og hafa þess vegna verið stór hvati fyrir tækniframfarir í heimilistölvum og í tölvuleikjagerð. Fyrstu persónu skotleikurinn var sú gerð tölvuleikja sem átti hvað mestan þátt í því að draga úr vinsældum ævintýraleikja sem fram að þeim tíma voru meðal vinsælustu gerða tölvuleikja.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Fyrstu persónu skotleikur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.