Friðrik Ólafsson (f.
26. janúar 1935) er íslenskur lögfræðingur, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Hann er sá íslenskur skákmanna sem mestum frama hefur náð í skákinni og er t.d. eini íslenski skákmaðurinn sem lagt hefur að velli Bobby Fischer (tvisvar sinnum). Hann var um tíma forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE).
Friðrik Ólafsson | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Friðrik Ólafsson | |
Fæðingardagur | 26. janúar, 1935 | |
Fæðingarstaður | Reykjavík, Ísland | |
Titill | Stórmeistari |
Friðrik lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1968. Hann var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá 1968-1974, forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) frá 1978-1982, ritstjóri Lagasafns Íslands frá 1982-1983 og skrifstofustjóri Alþingis frá 1984-2005.
Friðrik varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst árið 1952 og Norðurlandameistari í skák 1953 og 1971. Alþjóðlegur skákmeistari 1956 og árið 1958 varð hann fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Hann sigraði á skákmótinu í Hastings 1955-1956, í Beverwijk í Hollandi 1959, í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu árið 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Hann veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar frá 1982-1984.
Í nimzóindverskri vörn er lína sem nefnd er Ólafssonar afbrigðið eftir Friðriki. Um er að ræða línu í Rubenstein afbrigði og kemur hún upp eftir leikina: 1.d4 Rf6 2.c4 e6 3.Rc3 Bb4 4.e3 O-O 5.Bd3 d5 6.Rf3 c5 7.O-O dxc4 8.Bxc4 b6 9.De2 Bb7 10.Hd1 Dc8.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Friðrik Ólafsson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.