Elvis Aaron Presley (8.
janúar 1935 – 16. ágúst 1977) var bandarískur tónlistarmaður sem naut mikilla vinsælda á 20. öld. Hann var líka þekktur sem The King, King of Rock and Roll, Elvis the Pelvis og The Hillbilly Cat. Meðal laga hans eru „In The Ghetto“, „Jailhouse Rock“ og „Blue Suede Shoes“. Prestley náði fyrst miklum vinsældum með smáskífunni „Heartbreak Hotel“ sem gefin var út árið 1956. Hann var frumkvöðull í rokkabillí sem blandaði m.a. kántrí og blús. Elvis fann innblástur í gospel og blús svartra Ameríkana. Mjaðmahnykkir við tónlist sem var innblásin af svörtum vakti hneykslun hjá sumum landa hans.
Elvis Presley | |
---|---|
Fæddur | Elvis Aaron Presley Tupelo, Mississippi, BNA |
Dáinn | 16. ágúst 1977 (42 ára) |
Dánarorsök | Hjartaáfall |
Hvíldarstaður | Graceland, Memphis 35°2′46″N 90°1′23″V / 35.04611°N 90.02306°V |
Störf |
|
Ár virkur | 1953–1977 |
Maki | Priscilla Presley (g. 1967; sk. 1973) |
Börn | Lisa Marie Presley |
Tónlistarferill | |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgefandi |
|
Undirskrift | |
Elvis Presley var kallaður til herskyldu í bandaríska hernum árið 1958 fram til 1960 og dvaldi í Þýskalandi megnið af þeim tíma. Þar kynntist hann Priscilla Wagner (síðar Priscilla Presley) og giftu þau sig 1. maí árið 1967 og eignuðust 1968 dótturina Lisu Marie Presley (d. 2023). Priscilla Presley og Elvis Presley skildu árið 1972.
Presley lést árið 1977, 42 ára að aldri, en hann hafði árum saman misnotað róandi lyf. Heimili hans Graceland var opnað fyrir almenningi árið 1982.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Elvis Presley, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.