Einar Gunnar Bollason, fæddur 6.
nóvember 1943, er fyrrverandi landsliðsmaður og landsliðsþjálfari í körfuknattleik. Hann hefur einnig verið formaður KKÍ, setið í nefndum á vegum sambandsins, dæmt og starfað við fjölmiðla tengt körfuboltanum. Um skeið var Einar bæði landsliðsþjálfari og formaður KKÍ á sama tíma.
Einar Bollason | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fæðingardagur | 6. nóvember 1943 | |
Fæðingarstaður | Konungsríkið Ísland | |
Leikstaða | Miðherji | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | |
1958-1960 1961-1967 | ÍR KR Þór Akureyri KR KR FH Haukar | |
Þjálfaraferill | ||
1966–1967 1967–1969 1968–1969 1973–1974 1974–1976 1977 1979-1982 1979-1980 1982-1986 1984-1987 1987-1988 1988-1989 | KR (kk) Þór Akureyri (kk) Þór Akureyri (kvk) KR (kk) Ísland (kk) Ísland (kk) Ísland (kk) Fram (kk) Haukar (kk) Ísland (kk) ÍR (kk) Haukar (kk) | |
1 Meistaraflokksferill |
Einar hóf feril sinn með ÍR árið 1958 en skipti yfir í KR nokkrum árum síðar. Hann hætti að leika körfuknattleik vegna sjúkdóms snemma á áttunda áratugnum, en dró fram skóna aftur 1976 og lék með KR í þrjú ár til viðbótar. Hann lék auk þess örlítið með Haukum, þegar hann þjálfaði þá 1983-1984. Einar þjálfaði Þór Akureyri, og lék með liðinu, í lok sjöunda áratugarins.
Árið 2001 var Einar kjörinn þjálfari 20. aldarinnar af 50 manna nefnd sem einnig valdi leikmenn og dómara aldarinnar. Einar var auk þess kjörinn í lið 20. aldarinnar sem varamaður. Á þjálfaraferlinum þjálfaði Einar alla þá sem voru valdir í karlalið aldarinnar og báða dómarana. Sá eini sem Einar hafði ekki þjálfað var þjálfarinn sem lenti í öðru sæti; Friðrik Ingi Rúnarsson.
Þann 26. janúar 1976 var Einar hnepptur í varðhald, grunaður um hlutdeild í hvarfi Geirfinns Einarssonar. Nokkur ungmenni, þeirra á meðal Erla, hálfsystir Einars, bentu á hann, Valdimar Olsen, Sigurbjörn Eiríksson og Magnús Leopoldsson. Það varð til þess að Einar sat saklaus í einangrun í 105 daga í Síðumúlafangelsinu.
Einar stofnaði, ásamt fleirum, fyrirtækið Íshesta haustið 1982. Íshestar sérhæfa sig í hestaferðum fyrir ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda.
Fyrirrennari: Hólmsteinn Sigurðsson |
| Eftirmaður: Páll Júlíusson |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Einar Bollason, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.