Dögg

Dögg (áfall, náttfall eða væða) er gufa í loftinu sem hefur þést á einhverju köldu, t.d.

aðgreiningarsíða á Wikipediu

á grasi eða laufum. Dögg þéttist vanalega yfir nóttina og er augljós berum augum að morgni dags.

Dögg
Döggmerlaður kóngulóavefur.
Dögg
Dögg á strái.
Dögg
Döggslungið gras.

Dögg í íslensku máli

Talað er um döggslungið gras eða t.d. daggvota þúfu þegar dögg er í grasi eða á þúfnakolli. Allgengt er að segja að dögg falli á, eins og Þórður Tómasson skrifar í Veðurfræði Eyfellings:

    Raki stígur upp af jörðinni daglangt og undir kvöldið fer að falla á.

Hann talar líka um að jörð eða gras sé löðrandi í vatni, þegar það er mikið döggfall. Þegar dögg tekur af er stundum líka sagt að það/hann svaðrar af og átt við að döggin þorni af. Halldór Laxness talar um það í Íslandsklukkunni að það sé væða í grasinu: Það var væða í grasi. Og líka í Sjálfstæðu fólki: Væða í túninu, mýrin mórauð, grænkað í rindum.

Þágufall af dögg er dögg, en stundum einnig skrifað döggu (sbr. ör), en aðallega í skáldamáli. Í Völsungakviðu hinni fornu er sagt að dýrkálfurinn sé „döggu slunginn“. Eignarfallið af dögg er daggar en döggvar er líka til, og því er hvortveggja rétt málfræðilega: daggardropar og döggvardropar. Jóhann Jónsson skáld segir t.d. í einu ljóða sinna: Blítt lætur veröldin. / Drjúpa döggvartár / um dalvíðishár...

Tengt efni

  • Daggarmark, það hitastig sem loftraki þéttist við

Heimildir

Tenglar

Tags:

Dögg í íslensku máliDögg Tengt efniDögg HeimildirDögg TenglarDöggGrasGufaLauf

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Þóra ArnórsdóttirSíminnMóbergGullVeiðarfæriÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaKyn (málfræði)Jón GnarrÍtalíaDánaraðstoðÍslenskir stjórnmálaflokkarBríet BjarnhéðinsdóttirEigið féÆgishjálmurÓlafur Ragnar GrímssonForseti ÍslandsChewbacca-vörninListi yfir skráð trú- og lífsskoðunarfélög á ÍslandiFangelsið KvíabryggjaGerald FordBerkjubólgaGamli sáttmáliBesta deild kvennaUppeldisfræðiKeikóÁrni Grétar FinnssonRíkisstjórnJökulsá á DalÁsbyrgiGunnar HámundarsonÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaRéttarríkiSegulómunAsíaGoogleHarðmæliHákarlÓpersónuleg sögnSandeyriSamheitaorðabókBenito MussoliniAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Gunnar Smári EgilssonLoftfarAdam SmithMargot RobbieListi yfir páfaDavíð StefánssonUmsátrið um KinsaleÍslandÚtvarpsþátturBrennu-Njáls sagaSpænska borgarastyrjöldinRétt hornLúkasarmáliðAugaÞýskalandCristiano RonaldoSíldÚrkomaÍvan PavlovHektariKeníaÍslenska stafrófiðÍslensk krónaBaltasar KormákurListi yfir íslenska myndlistarmennÚkraínaTjaldurÓlafsvíkGuðmundur Felix GrétarssonKárahnjúkavirkjunBoðorðin tíuXboxSiglufjörðurKoltvísýringurMinniPardusköttur🡆 More