Claude Monet (14.
nóvember">14. nóvember 1840 – 6. desember 1926) var franskur listmálari sem er einn af upphafsmönnum impressjónismans; listastefnu sem kom upp meðal listamanna í París á síðari hluta 19. aldar. Hann fékkst fyrst og fremst við landslagsmálverk sem hann málaði undir berum himni.
Monet var giftur Camille Doncieux og áttu þau synina Jean og Michel. Eftir dauða Camille árið 1879 fór Monet að búa hjá Alice Hochedé sem sjálf átti 6 börn. Þegar fréttir bárust af dauða Ernest Hochedé 1892 gátu Alice og Monet loksins gift sig. Þau bjuggu í bænum Giverny en í garðinum þar málaði Monet margar frægustu myndir sínar.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Claude Monet, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.