Canberra

Canberra (eða Kanberra á íslensku) er höfuðborg Ástralíu.

Hún er á Höfuðborgarsvæði Ástralíu. Nafnið er komið af heiti frumbyggja svæðisins yfir það, og talið þýða staður þar sem fólk kemur saman. Íbúar borgarinnar eru um 403.000 (2016) sem gerir hana 8. stærstu borg Ástralíu og þá stærstu inn til lands.

Canberra
Þinghús Ástralíu í Canberra

Saga

Canberra var stofnuð sérstaklega sem höfuðborg fyrir hið nýja samveldi í kjölfar deilna milli tveggja stærstu borganna, Melbourne og Sydney um hvar hið nýja þing skyldi vera staðsett. Staðsetningin var valin árið 1908 sem nokkurn veginn mitt á milli borganna tveggja og þægileg staðsetning til að byggja á, með góðum aðgangi að vatni. Árið 1911 sigraði Bandaríkjamaðurinn Walter Burley Griffin alþjóðlega keppni um skipulag borgarinnar. Það er stöðuvatn í miðri borginni nefnt eftir honum. 1913 var borgin nefnd og byrjað var að byggja hana. Árið 1927 flutti samveldisþingið þangað.

Framan af var Canberra hálfgerður smábær en í dag er Canberra orðin alvöru höfuðborg hvað varðar stjórnsýsluna. Þar eru samveldisþingið, hæstirétturinn, Háskóli Ástralíu (enska: Australian National University) og fleiri mikilvægar stofnanir.

Í Janúar 2003 riðu skógareldar yfir hluta borgarinnar og 491 heimili brunnu til kaldra kola. Einnig eyðilagðist algjörlega stjörnuskoðunarstöðin á Stromlófelli. Þrátt fyrir þetta létust einungis fjórir.

Hverfaskipting

Canberra er skipulögð borg, með einn kjarna og nokkur stór úthverfum, hverju skiptu í mörg smærri hverfi. Flest þessara úthverfa hafa svo eigin kjarna með verslunum og þjónustu og útivistarsvæði, oftast með litlu stöðuvatni. Milli helstu úthverfana eru græn svæði, þar sem náttúran ræður ríkjum og dýr svo sem kengúrur ganga villt.

Aðalúthverfi borgarinnar eru, í stafrófsröð:

  • Belconnen
  • Gungahlin
  • Norður-Canberra
  • Suður-Canberra
  • Tuggeranong
  • Weston Creek
  • Woden Dalur

Norður og suður Canberra eru miðbærinn, sitt hvoru megin við Burley Griffin-vatn. Þar að auki eru bærinn Queanbeyan (í Nýja Suður Wales) og þorpið Hall (eitt af mjög fáum sveitarfélögum innan höfuðborgarsvæðisins utan Canberra) hálfgerð úthverfi borgarinnar.

Tags:

BorgFrumbyggjar ÁstralíuHöfuðborgHöfuðborgarsvæði ÁstralíuÍslenska

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Bandamenn (seinni heimsstyrjöldin)GreinirNafnháttarmerkiRio FerdinandJöklar á ÍslandiEinhverfaHávamálFjallkonanKokteilsósaSveindís Jane JónsdóttirMargrét ÞórhildurNafnhátturHallgerður HöskuldsdóttirStella í orlofiSagan af DimmalimmSnorra-EddaKrossferðirForsetakosningar á Íslandi 2012LandvætturLjóðstafirVeraldarvefurinnAskja (fjall)Jörundur hundadagakonungurNeskaupstaðurVatnHeimdallurLindýrGuðmundur Felix GrétarssonBragfræðiIcesaveRáðuneyti Sigmundar Davíðs GunnlaugssonarNorræn goðafræðiKyngerviSeinni heimsstyrjöldinHermann HreiðarssonFilippseyjarMóbergBesti flokkurinnTaugakerfiðÞýskalandÍslenskar mállýskurEldkeilaGyðingarLundiÁstþór MagnússonFramsóknarflokkurinnFöstudagurinn langiStari (fugl)EyríkiFæðukeðjaListi yfir íslensk skáld og rithöfundaViðtengingarhátturEldfellVatnsdeigLoftþrýstingurÚtlendingastofnunEgill HelgasonListi yfir gjaldmiðla í notkunFrumeindBjörgvin HalldórssonCarles PuigdemontNáttúraKalda stríðið á ÍslandiSamfylkinginDaniilMeðalhæð manna eftir löndumBenito MussoliniFallorðBerserkjasveppurEyjafjörðurNorðurlöndinGústi GuðsmaðurLitáenTáknJarðskjálftar á ÍslandiSívaliturnBarokk🡆 More