Brigitte Bardot (bʁiʒit baʁˈdo) (28.
september 1934) er frönsk leikkona, fyrrverandi tískusýningarstúlka, ljósmyndafyrirsæta og söngvari og kyntákn á 6. og 7. áratug 20. aldar. Hún er ákafur dýraverndarsinni og hefur barist fyrir því að selveiðar verði bannaðar. Hún hefur verið tilnefnd til BAFTA-verðlaunanna og var í hópi 100 kvikmyndaleikkvenna sem Empire magazine tilnefndi sem heitustu kyntáknin í kvikmyndasögunni.
Eftir að hún hætti kvikmyndaleik á áttunda áratug síðustu aldar hóf hún að starfa í þágu dýraverndar og gerir það enn. Á 10. áratugnum hóf hún að ræða pólitísk málefni eins og innflytjendamál og íslam í Frakklandi og samkynhneigð.
Hún hefur verið gift fjórum mönnum. Fyrsti maður hennar var Roger Vadim (1952-1957), annar var Jacques Charrier (1959-1962), sá þriðji Gunter Sachs (1966-1969) og loks Bernard d'Ormale frá 1992.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Brigitte Bardot, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.