Búrúndí: Land í Mið-Afríku

Búrúndí (áður Úrúndí) er lítið landlukt land í Mið-Afríku við stóru vötnin.

Það á landamæri að Rúanda í norðri, Tansaníu í suðri og austri, og Lýðveldinu Kongó í vestri. Stór hluti vesturlandamæranna liggur við Tanganjikavatn. Nafnið er dregið af heiti bantúmálsins kírúndi. Búrúndí er mjög þéttbýlt og fátækt land.

Lýðveldið Búrúndí
Republika y'u Burundi
Fáni Búrúndí Skjaldarmerki Búrúndí
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Unite, Travail, Progres
(franska: Eining, vinna, framfarir)
Þjóðsöngur:
Burundi Bwacu
Staðsetning Búrúndí
Höfuðborg Gitega
Opinbert tungumál kírúndí, franska, enska
Stjórnarfar Forsetalýðveldi

Forseti Évariste Ndayishimiye
Stofnun ríkis
 • Konungsríkið Úrúndí 1680-1966 
 • Hluti Þýsku Austur-Afríku 1890-1916 
 • Hluti Rúanda-Úrúndí 1916-1962 
 • Sjálfstæði frá Belgíu 1. júlí 1962 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
142. sæti
27.834 km²
10
Mannfjöldi
 • Samtals (2023)
 • Þéttleiki byggðar
77. sæti
13.162.952
473/km²
VLF (KMJ) áætl. 2023
 • Samtals 11,551 millj. dala (164. sæti)
 • Á mann 890 dalir (193. sæti)
VÞL (2021) Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur 0.426 (187. sæti)
Gjaldmiðill búrúndískur franki
Tímabelti UTC+2
Þjóðarlén .bi
Landsnúmer +257

Landið hefur verið byggt Túum, Hútúum og Tútsum í minnst fjórar aldir. Undir lok 17. aldar stofnuðu Tútsar Konungsríkið Búrúndí. Í upphafi 20. aldar lögðu Belgar og Þjóðverjar landið undir sig og Búrúndí varð hluti af nýlendunni Rúanda-Úrúndí. Árásir Hútúa á Tútsa í Rúanda, rétt áður en löndin fengu sjálfstæði, urðu til þess að íbúar Búrúndí sóttust eftir aðskilnaði frá Rúanda. Árið 1962 lýsti landið yfir sjálfstæði og tók upp þingbundna konungsstjórn. Árið 1966 var konungsvaldið lagt niður og landið lýst lýðveldi, þótt það væri í raun undir herforingjastjórn. Vopnuð átök milli þjóðarbrota Hútúa og Tútsa hófust nokkrum árum síðar og skipulögð morð áttu sér reglulega stað þrátt fyrir harðar refsiaðgerðir stjórnvalda. Þegar stjórnarskránni var breytt 1992 til að afnema flokksræðið braust út borgarastyrjöld sem stóð frá 1993 til 2006.

Frá 2006 hefur staðið yfir enduruppbygging í landinu undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur gengið hægt og efnahagur landsins er í rúst eftir áratugalanga styrjöld. Landið er eitt það fátækasta í heimi og yfir helmingur barna undir fimm ára aldri býr við viðvarandi vannæringu. Helsta tekjulind landsins er kaffi sem nemur yfir 93% af útflutningi þess, en íbúar Búrúndí flytja líka út aðrar landbúnaðarvörur og góðmálma.

Landfræði

Búrúndí er eitt af minnstu löndum Afríku. Það er landlukt land þar sem miðbaugsloftslag er ríkjandi. Búrúndí er hluti af Vestursigdalnum sem er hluti af Sigdalnum mikla sem liggur vestan við Viktoríuvatn. Landið er á hæðóttri hásléttu í miðri Afríku. Búrúndí á landamæri að Rúanda í norðri, Tansaníu í austri og suðaustri, og Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í vestri. Þar eru vistsvæðin fjallaskógar Vestursigdalsins, miomboskógar Mið-Sambesí og skógargresja Viktoríuvatns.

Meðalhæð hásléttunnar er 1.707 metrar, en landið liggur lægra við landamærin. Heha-fjall er hæsti tindur landsins, í 2.685 metra hæð. Það rís suðaustan við efnahagslega höfuðborg landsins, Bújúmbúra. Hæstu upptök Nílarfljóts eru í Bururi-sýslu og renna sem Ruvyironza-fljót út í Viktoríuvatn. Kagera-fljót er önnur mikilvæg á sem rennur í Viktoríuvatn frá Búrúndí. Helsta stöðuvatn Búrúndí er Tanganjikavatn sem liggur á suðvesturlandamærum landsins.

Tveir þjóðgarðar eru í Búrúndí, Kibira-þjóðgarðurinn í norðvestri (lítil ræma af regnskógi samhliða Nyungwe-þjóðgarðinum í Rúanda) og Ruvubu-þjóðgarðurinn í norðaustri (meðfram Rurubu-fljóti). Báðir þjóðgarðarnir voru stofnaðir 1982 til að vernda villt dýralíf.

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Búrúndí skiptist í 18 sýslur sem hver heitir eftir sínum höfuðstað, fyrir utan dreifbýli við Bújúmbúra. Nýjasta sýslan er Rumonge-sýsla. Hún var stofnuð árið 2015 úr fimm sveitarfélögum sem áður heyrðu undir dreifbýli við Bújúmbúra og Bururi.

Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur 
Sýsla Höfuðstaður Stærð
(km2)
Íbúar
(manntal 2008)
Íbúar á km2) Sveitarfélög
Austur-Búrúndí
Cankuzo Cankuzo 1.964,54 228.873 116,5 5
Gitega Gitega 1.978,96 725.223 366,5 11
Rutana Rutana 1.959,45 333.510 170,2 6
Ruyigi Ruyigi 2.338,88 400.530 171,2 7
Norður-Búrúndí
Karuzi Karuzi 1.457,40 436.443 299,5 7
Kayanza Kayanza 1.233,24 585.412 474,7 9
Kirundo Kirundo 1.703,34 628.256 368,8 7
Muyinga Muyinga 1.836,26 632.409 344,4 7
Ngozi Ngozi 1.473,86 660.717 448,3 9
Suður-Búrúndí
Bururi Bururi 1.644,68 313.102 190,4 6
Makamba Makamba 1.959,60 430.899 219,9 6
Rumonge Rumonge 1.079,72 352.026 326,0 5
Vestur-Búrúndí
Bubanza Bubanza 1.089,04 338.023 310,4 5
Bujumbura Mairie Bújúmbúra 86,52 497.166 5746,3 13
Bujumbura Rural Isale 1.059,84 464.818 438,6 9
Cibitoke Cibitoke 1.635,53 460.435 281,5 6
Muramvya Muramvya 695,52 292.589 420,7 5
Mwaro Mwaro 839,60 273.143 325,3 6

Efnahagur

Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur 
Þróun landsframleiðslu á mann.

Búrúndí er landlukt land sem er fátækt af náttúruauðlindum og með vanþróaðan iðnað. Um helmingur af þjóðarframleiðslunni kemur frá landbúnaði sem nýtir um 90% mannaflans. Um 90% af landbúnaðinum er sjálfsþurftarbúskapur. Helstu útflutningsvörur eru te og kaffi sem eru 90% af gjaldeyristekjum, þótt útflutningur sé tiltölulega lítill hluti af landsframleiðslunni. Aðrar útflutningsvörur eru bómull, maís, dúrra, sætar kartöflur, bananar, tapíóka, nautakjöt, mjólk og húðir. Vegna fólksfjölgunar og skorts á stefnu um eignaraðild lands hafa margir íbúar litla möguleika á að framfleyta sér af sjálfsþurftarbúskap. Árið 2014 var meðalstærð býla innan við hálfur hektari.

Búrúndí er fátækasta ríki heims, meðal annars vegna skorts á aðgengi að menntun og útbreiðslu HIV-veirunnar. Talið er að um 80% af íbúum landsins lifi við fátækt. Hungursneyðir og matarskortur hafa hrjáð landið á 20. öld og samkvæmt Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna þjást 56,8% barna undir fimm ára aldri af krónískri vannæringu. Gjaldeyristekjur Búrúndí, og þar með geta landsins til að greiða fyrir innflutning, er að stórum hluta háð veðri og verðlagningu á alþjóðlegum te- og kaffimörkuðum.

Kaupmáttur flestra Búrúndíbúa hefur minnkað þar sem kauphækkanir hafa ekki haldið í við verðbólgu. Afleiðingin af versnandi fátækt er að Búrúndí er mjög háð erlendri aðstoð. Um 42% af þjóðartekjum kemur þaðan, sem er hæsta hlutfallið í Afríku sunnan Sahara. Búrúndí gerðist aðili að Austur-Afríkusambandinu árið 2009 til að efla verslun við nágrannaríki. Landið fékk líka 700 milljón dala eftirgjöf á skuldum sama ár. Spilling í stjórn landsins kemur í veg fyrir þróun heilbrigðs einkageira þar sem fyrirtæki takast á við síbreytilegt regluverk.

Rannsóknir hafa allt frá 2007 sýnt að lífsánægja Búrúndíbúa er mjög lítil. Samkvæmt Hamingjuskýrslunni 2018 var Búrúndí það ríki þar sem minnst hamingja mældist í heiminum.

Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur 
Fiskimenn á Tanganjikavatni.

Meðal náttúruauðlinda Búrúndí eru úran, nikkel, kóbalt, kopar og platína. Fyrir utan landbúnað er til iðnaður á sviði samsetningar á innfluttum vörum, opinberar byggingarframkvæmdir, matvælaiðnaður og smáiðnaður við framleiðslu á til dæmis teppum, skóm og sápu.

Búrúndí er í næstneðsta sæti allra ríkja heims hvað varðar samskiptainnviði samkvæmt vísitölu Alþjóðaefnahagsráðsins yfir stöðu þróunar á sviði upplýsinga- og samskiptatækni. Búrúndí var í 147. sæti vísitölunnar árið 2014 og hafði fallið úr 144. sæti árið áður.

Skortur á aðgengi að fjármálaþjónustu er mikið vandamál fyrir meirihluta íbúa, sérstaklega í þéttbýlustu sveitunum. Einungis um 2% íbúa er í bankaviðskiptum og innan við hálft prósent taka bankalán. Örfjármögnun leikur stærra hlutverk, en um 4% landsmanna eiga aðild að örfjármögnunarfyrirtækjum; fleiri en hafa aðgang að bankaþjónustu og póstþjónustu. 26 skráð örfjármögnunarfyrirtæki bjóða upp á sparnað, innlánsreikninga og skammtíma- og langtímalán. Þessi geiri er minna háður erlendri fjárhagsaðstoð.

Búrúndí er hluti af Austur-Afríkusambandinu og gæti orðið aðili að Sambandsríki Austur-Afríku. Hagvöxtur er tiltölulega stöðugur, en Búrúndí er samt eftirbátur nágrannaríkjanna.

Íbúar

Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur 
Börn í Bújúmbúra.

Í október 2021 áætlaði Efnahags- og félagsmálaskrifstofa Sþ að íbúafjöldi Búrúndí væri 12,4 milljónir, en var aðeins 2,5 milljónir árið 1950. Fólksfjölgunarhlutfallið er 2,5% á ári, sem er meira en tvöfalt hærra en meðaltal heimsins. Hver kona í Búrúndí eignast að meðaltali 5,1 barn, sem er tvöfalt hærra frjósemishlutfall en að meðaltali í heiminum. Heildarfrjósemishlutfall Búrúndí var það 10. hæsta í heimi, rétt á eftir Sómalíu, árið 2021.

Margir íbúar Búrúndí hafa flust til annarra landa vegna borgarastyrjaldarinnar. Árið 2006 tóku Bandaríkin við um 10.000 búrúndískum flóttamönnum.

Búrúndí er landbúnaðarsamfélag og aðeins 13% íbúa bjuggu í þéttbýli árið 2013. Þéttleiki byggðar er um 315 manns á ferkílómetra sem er annar mesti þéttleiki í Afríku sunnan Sahara. Um 85% íbúa eru Hútúar að uppruna, 15% eru Tútsar og innan við 1% er Túar.

Opinber tungumál Búrúndí eru kírúndí, franska og enska. Enska var gerð að opinberu tungumáli árið 2014. Nær allir íbúar tala kírúndí og innan við 10% tala frönsku.

Tilvísanir

Búrúndí: Landfræði, Stjórnmál, Efnahagur   Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Búrúndí LandfræðiBúrúndí StjórnmálBúrúndí EfnahagurBúrúndí ÍbúarBúrúndí TilvísanirBúrúndíBantúmálLandLandamæriLandluktLýðveldið KongóMið-AfríkaRúandaSmáríkiStóru vötninTanganjikavatnTansanía

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Marcus Junius BrutusKareem Abdul-JabbarTrúarbrögðKjördæmi ÍslandsTenerífeEgyptalandRisaeðlurÍþróttabandalag VestmannaeyjaKlemens von MetternichVigdís FinnbogadóttirSamtengingVallettaEfnishyggjaOktóberbyltinginLaufey Lín JónsdóttirForseti ÍslandsHættir sagna í íslenskuÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaKjarnorkaEsjaErpur EyvindarsonElísabet JökulsdóttirListi yfir íslenska myndlistarmennNoregurGeimferðastofnun BandaríkjannaMon-khmer málÁhrifavaldurÞórshöfn (Færeyjum)GolfstraumurinnTitanicHektariNorður-AmeríkaTyrkjarániðKári StefánssonDanmörkB-vítamínEvraÞrælahaldFaðir vorHeimilistölvaGyrðir ElíassonKisínáHaukur MorthensSvandís SvavarsdóttirAtómmassiÍtalíaAlmenna persónuverndarreglugerðinBragfræðiSkjaldarmerki ÍslandsMorðin á SjöundáNafnháttarmerkiÞorgerður Katrín GunnarsdóttirPlayMegasStigbreytingÁratugurSódóma ReykjavíkJesúsLandsbankinnAsíaÍslandJón Páll SigmarssonTungumálDónáÍrska lýðveldiðA Clockwork Orange (bók)UndirskriftalistiPáskaeyjaLitla hafmeyjanSöngvakeppni sjónvarpsins 2012ÞjórsáEndurnýjanleg orkaHræringur🡆 More