Þungarokk: Tónlistarstefna

Þungarokk, stundum kallað bárujárnsrokk eða metal(l), er tegund rokktónlistar sem mótaðist seint á 7.

áratug 20. aldar.

Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Tony Iommi úr Black Sabbath er þekktur fyrir að vera frumkvöðull í þungarokksgítarriffum.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Metallica er ein vinsælasta þungarokkshljómsveit heims.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Ronnie James Dio var meðal annars þekktur fyrir að gera djöflahornsmerki vinsælt.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Kiss eru þekktir fyrir skrautlega sviðsframkomu.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Iron Maiden á tónleikum.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Children of Bodom frá Finnlandi.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Dimmu Borgir frá Noregi spila svartmálm.
Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni
Heri Joensen, gítarleikari í færeysku þungarokksveitinni Týr.

Söguágrip

Þungarokk á rætur sínar í blúsrokki og ýmis konar öðru rokki. Þróunin, aðallega Bretlandi, hefur haft mikið með tónlistarstefnuna að segja en einnig voru áhrifamiklar hljómsveitir vestanhafs. Á 7. áratug 20. aldar voru hljómsveitir undir áhrifum frá amerískum blús en urðu taktfastari og mögnuðu upp hljóðfæri sín. Hljómsveitir eins og The Kinks, The Who, Jimi Hendrix, Steppenwolf, Blue Cheer, Cream og The Jeff Beck Group komu með nýjar hugmyndir og höfðu áhrif á síðari hljómsveitir. Steppenwolf kom með setninguna; heavy metal thunder, í lagi sínu Born to be Wild árið 1968. Síðar fóru blaðamenn í tímaritinu Rolling Stone að nota hugtakið heavy metal reglulega. Á 8. áratugnum var það notað sem skammaryrði yfir hávaðasöm bönd en síðar varð það hlutlausara og átti við tiltekinn lífstíl og tónlist.

Litið er þó yfirleitt á hljómsveitirnar Black Sabbath, Led Zeppelin og Deep Purple sem fyrstu þungarokkshljómsveitirnar. Þær byggðu tónlist sína á þéttu gítarspili með bjögunareffektum, hröðum gítarsólóum og kröftugum trommuleik og söng.

Á 8. áratugnum hófu amerískar hljómsveitir að gera rokk af harðara kantinum aðgengilegra og voru með litríka sviðsframkomu. Sveitir eins og Aerosmith, Van Halen, Alice Cooper og Kiss voru áberandi í þeim geira. AC/DC (stofnuð 1973) frá Ástralíu kom með sína hörðu útgáfu af blúsrokki.

Undir lok 8. áratugarins komu fram nýjar hljómsveitir í Bretlandi. Þessi nýja bylgja (þekkt sem breska nýbylgjan í þungarokki, enska: New wave og british heavy metal/NWOBHM ) skapaði hljómsveitir eins og Judas Priest, Iron Maiden og Motörhead. Þessar hljómsveitir höfðu aftur á móti áhrif á nýja nálgun í vesturheimi í upphafi 9. áratugarins þar sem hraði var eitt helsta einkennið: Þrass (thrash metal) varð til með sveitum eins og Metallica, Megadeth, Slayer og Anthrax. Textagerðin varð öfgakenndari og þrasshljómsveitirnar vildu enn fremur aðskilja sig frá glysþungarokki sem var áberandi á sama tíma.

Á 9. áratugnum náði aðgengilegra form þungarokks töluverðum vinsældum. Bönd eins og til dæmis Guns N' Roses og Europe komust hátt á vinsældalista. Á 9. áratugnum varð einnig til ný jaðarstefna, dauðarokk með hljómsveitum eins og Death. Árið 1991 náði svarta plata Metallica miklum vinsældum og árið 1994 komst platan Far Beyond Driven með Pantera á toppinn á Billboard listanum í Bandaríkjunum.

Vinsældir hefðbundnara þungarokks dvínuðu með gruggi sem varð til í Seattle í byrjun 10. áratugarins. Grugg var undir áhrifum frá ýmsu þungarokki og hefur stundum verið talið til jaðarþungarokks. Á 10. áratugnum komu einnig fram nýjar stefnur eins og jaðarþungarokk og nu metal sem blönduðu þungarokki við aðrar tónlistarstefnur. Rage Against The Machine, Korn, Deftones, Limp Bizkit og System of a Down fundu áhrif í rappi og hipphoppi. Ýmsar aðrar undirtegundir urðu til og meðal annars má nefna framsækið þungarokk þar sem hljómsveitir fóru ýmsar leiðir í flóknum útsetningum tónverka og kraftmálm (power metal), sem hefur verið vinsæll í Þýskalandi, þar er sótt er í klassískt þungarokk en stíllinn er hraður og textar fantasíukenndir. Til eru ótal afbrigði af þungarokki í dag.

Þungarokk hefur verið umdeilt. Gagnrýnendur hafa afskrifað það sem yfirgengilegan ungæðishátt og íhaldsamir hópar hafa mótmælt textagerð sem þeir telja vera af hinu illa og hafa skaðleg áhrif.

Undirgreinar

(Listinn er ekki tæmandi)

Tengt efni

Tenglar

Vísindavefur - Hver er saga þungarokksins?

Tilvísanir

Þungarokk: Söguágrip, Undirgreinar, Tengt efni 
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu

Tags:

Þungarokk SöguágripÞungarokk UndirgreinarÞungarokk Tengt efniÞungarokk TenglarÞungarokk TilvísanirÞungarokkRokktónlist

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

RafhlaðaHjartaArnaldur IndriðasonListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðSigríður AndersenMeistaradeild EvrópuBorgarnesGeorgía BjörnssonSkjaldbakaBjörgvin HalldórssonGunnar Smári EgilssonAgnes M. SigurðardóttirMorð á ÍslandiÍslandsbankiÍslenska þjóðkirkjanHallgrímur PéturssonAndri Lucas GuðjohnsenÍrska lýðveldiðBesti flokkurinnRómantíkinSkandinavíaLeiðtogafundurinn í HöfðaLindýrSíminnListi yfir íslenska tónlistarmennDýrin í HálsaskógiTölfræðiListi yfir íslenska myndlistarmennBørsenÓpersónuleg sögnTölvusneiðmyndÖlfusárbrúHannes Hlífar StefánssonSveitarfélagið ÖlfusListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999GullListi yfir úrslit í SkólahreystiSegulómunIsland.isGuðmundur G. HagalínTrúarbrögðAskja (fjall)Luciano PavarottiTeiknimyndMörgæsirFenrisúlfurInga SælandÞórarinn EldjárnÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaDanmörkListi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiEnglar alheimsinsStöð 2Ólafur Darri ÓlafssonSagnbeygingMóbergSnjóflóðið í SúðavíkSagan af DimmalimmPaul PogbaFlugumýrarbrennaSiglufjörðurKynlífLionel MessiMaríubjallaMinniPortúgalFroskarJarðfræði ÍslandsSjónvarpiðSægreifinn (tölvuleikur)Albert EinsteinFrumefniHeklaKötturSogiðÓlafur pái HöskuldssonGæsalappir🡆 More