Auður Þorbergsdóttir (f.
20. apríl 1933, d. 26. janúar 2023) var íslenskur lögfræðingur og fyrrverandi borgardómari. Hún varð fyrsta konan á Íslandi sem skipuð var dómari í íslensku dómskerfi, er hún var skipuð borgardómari árið 1972.
Auður fæddist í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Guðrún Símonardóttir Bech húsmóðir og Þorbergur Friðriksson skipstjóri. Systkini Auðar eru Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú, Þór Þorbergsson búfræðingur og Þorbergur Þorbergsson verkfræðingur.
Auður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1958 og fékk leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi tveimur árum síðar. Auður var lögfræðingur veðdeildar Landsbanka Íslands 1961-1963. Hún var ráðin fulltrúi yfirborgardómara við Borgardómaraembættið 1963 og gegndi því starfi þar til hún var skipuð borgardómari. Auður sat í því embætti til ársins 1992 er hún var skipuð héraðsdómari í Reykjavík. Hún var varaforseti Félagsdóms 1989-1992. Þá var hún skipuð forseti Félagsdóms, fyrst kvenna hér á landi. Þess má geta að frá 1963 til 1992 framkvæmdi Auður hjónavígslur og mun hafa verið fyrsta konan til þess á Íslandi.
Auður var gift Hannesi Kristni Davíðssyni arkitekt og börn þeirra eru Guðrún Þorbjörg (fædd 1965) og Kristinn Tanni (1963).
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Auður Þorbergsdóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.