Austurstræti er gata í miðbæ Reykjavíkur sem nær frá Veltusundi austur að Lækjargötu.
Í framhaldi af henni er Bankastræti og ofar Laugavegur.
Austurstræti hét í fyrstu Tværgaden og seinna Langafortov eða Langastétt. Gatan var svo nefnd vegna þess að steinaröð var lögð eftir henni að sunnanverðu til þess að ganga á þegar ekki varð komist yfir hana fyrir forarbleytu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Austurstræti, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.