Arnljótur Ólafsson (fæddur á Auðólfsstöðum í Langadal 21.
nóvember 1823, dáinn 29. október 1904) var íslenskur hagfræðingur, prestur og stjórnmálamaður.
Arnljótur lauk stúdentsprófi 1851 og las hagfræði við Kaupmannahafnarháskóla í nokkur ár án þess að ljúka prófi. Í Kaupmannahöfn var hann ritstjóri Skírnis á árunum 1853 og 1855-60 og einkakennari sonar Blixen-Finecke baróns. Arnljótur lauk guðfræðiprófi frá Prestaskólanum árið 1863 og var prestur á Bægisá árin 1863—89 og á Sauðanesi frá 1889 til æviloka.
Árið 1880 gaf hann út bókina Auðfræði, þá fyrstu á Íslandi um hagfræði.
Kosinn Alþingismaður Norður Þingeyinga árið 1900, en kom ekki til þings 1901 vegna veikinda.
Fyrirrennari: Jón Guðmundsson |
| Eftirmaður: Sveinn Skúlason | |||
Fyrirrennari: Sveinn Skúlason |
| Eftirmaður: Guðbrandur Vigfússon |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Arnljótur Ólafsson, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.