Önnur ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum 28.
nóvember 2021 og skipaði hún, eins og í fyrri ríkisstjórn Katrínar sem starfaði frá 2017-2021, Vinstri græna, Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn. Ríkisstjórnarmyndun og kynning stjórnarsáttmála drógst á langinn vegna rannsóknar undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa á brotum kosningalaga við talningu í Norðvesturkjördæmi en það var loks afgreitt á Alþingi 25. nóvember 2021. Flokkarnir héldu þingmeirihluta sínum í Alþingiskosningunum 2021, fengu 37 þingmenn kjörna, eitt þingsæti bættist síðar við tveimur vikum eftir kosningar er Birgir Þórarinsson gekk úr Miðflokknum og yfir í Sjálfstæðisflokkinn og þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar því 38 þingmenn. Ríkisstjórnin var kynnt á Kjarvalsstöðum og í henni sitja 12 ráðherrar sem skiptist þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fimm ráðuneyti auk embættis Forseta Alþingis, Framsóknarflokkurinn hefur fjögur og Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur þrjú. Ráðherrum var fjölgað úr 11 í 12 og ráðuneytum úr 10 í 12 frá fyrri ríkisstjórn og verkefni færð til á milli ráðuneyta.
Þann 5. apríl 2024 tilkynnti Katrín að hún myndi láta af embætti forsætisráðherra og gefa kost á sér í forsetakosningunum 2024. 9. apríl 2024 var mynduð ný ríkisstjórn, annað ráðuneyti Bjarna Benediktssonar með sömu þremur flokkunum, og tók hún við 10. apríl 2024.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.