ATTAC (skammstöfun sem stendur fyrir Association pour la taxation des transactions financières pour l'aide aux citoyens og Association for the Taxation of financial Transactions and Aid to Citizens) eru samtök sem vinna að málefnum sem tengjast hnattvæðingu og neikvæðum afleiðingum fjárhagslegrar hnattvæðingar og einkavæðingar.
Samtökin urðu til árið 1998 í Frakklandi. Alls eru deildir 48 löndum um allan heim. Félagar eru alls yfir 85.000. Íslandsdeild ATTAC samtakanna var stofnuð 2009. Formaður Íslandsdeildar ATTAC samtakanna er Sólveig Anna Jónsdóttir.
Í desember árið 1997 skrifaði ritstjóri franska blaðsins Le Monde diplomatique, Spánverjinn Ignacio Ramonet, grein í blaðið um nauðsyn þess að koma á örskatti á gjaldeyrisbrask, hinum svokallaða Tobin-skatti. Stofna þyrfti samtök sem myndu þrýsta á yfirvöld hvarvetna um að koma á þessum skatti. Í kjölfarið voru ATTAC samtökin stofnuð.
Upphaflegt stefnumið ATTAC var aðeins eitt, að krefjast þess að Tobin-skatt yrði komið á. ATTAC vinnur nú að fjölda málefna sem tengjast hnattvæðingu og neikvæðum afleiðingum fjárhagslegrar hnattvæðingar og einkavæðingar. Samtökin hafa eftirlit með starfi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO; Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins AGS.
ATTAC lítur ekki á sig sem andstæðing hnattvæðingar en gagnrýnir þá hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar sem samtökin líta á að stýri hnattvæðingunni. Þau styðja það sem þau kalla sjálfbæra hnattvæðingu og félagslegt réttlæti. Þá fordæma samtökin markaðsvæðingu samfélagsins. Eitt af slagorðum ATTAC er „Veröldin er ekki til sölu“.
Samtökin eru grasrótarsamtök en skipulag þeirra byggir á hugmyndum um valddreifingu. Hver deild er sjálfstæð og skipuleggur fundi, ráðstefnur og semur og dreifir kynningarefni. Nokkur munur er á starfsemi samtakanna milli landa en hver deild beinir spjótum sínum að neikvæðum birtingarmyndum hnattvæðingar og fjármálavæðingar í sínu eigin landi.
ATTAC vill virkja almenning til baráttu, tengja saman fræðasamfélagið og almenning og fræða almenning um starfsemi alþjóðastofnana sem samtökin hafa eftirlit með, birtingarmyndir hnattvæðingar og afleiðingar fjármálavæðingar.
ATTAC var einn af þeim aðilum sem skipulagði og boðaði til World Social Forum í Porto Alegre í Brasilíu 2001 en þar myndaðist vettvangur þar sem hnattvæðingu á forsendum nýfrjálhyggju var kröftuglega mótmælt.
Árni Daníel Júlíusson, „Hvað er ATTAC“, http://www.attac.is/index.php?option=com_content&view=section&layout=blog&id=3&Itemid=41 Geymt 12 febrúar 2010 í Wayback Machine Skoðað 29. september 2010, kl. 8:10.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article ATTAC samtökin, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.