Rökfræði

Rökfræði er undirgrein heimspekinnar sem fæst við gildi ályktana.

Fræðigreinin var fundin upp af forngríska heimspekingnum Aristótelesi á 4. öld f.Kr. Um miðja 19. öld fóru stærðfræðingar að sýna rökfræðinni aukinn áhuga, en nútímarökfræði er venjulega sögð verða til undir lok 19. aldar og er Gottlob Frege gjarnan talinn faðir nútímarökfræði.

Óformleg, formleg, táknleg, heimspekileg og stærðfræðileg rökfræði

  • Óformleg rökfræði fæst við röksemdafærslur í náttúrulegum tungumálum. Rökvillur eru mikilvægt viðfangsefni innan óformlegrar rökfræði.
  • Formleg rökfræði fæst við ályktanir út frá formi þeirra. Innan formlegrar rökfræði eru mörg rökkerfi, svo sem setningarökfræði, umsagnarökfræði og háttarökfræði.
  • Táknleg rökfræði er formleg rökfræði sett fram með táknmáli rökfræðinnar. Táknleg rökfræði er stundum nefnd stærðfræðileg rökfræði vegna þess að táknmál rökfræðinnar var upphaflega þróað úr táknmáli stærðfræðinnar.
  • Heimspekileg rökfræði fæst við þau grundvallarhugtök sem rökfræðin gengur út frá, svo sem sannleika, merkingu, tilvísun o.fl. og tengslin á milli rökfræðinnar og náttúrulegra tungumála. Heimspekileg rökfræði er náskyld málspeki.
  • Stærðfræðileg rökfræði er annars vegar beiting rökfræðinnar á viðfangsefni innan stærðfræði, hins vegar samheiti fyrir táknlega rökfræði.

Eitt og annað

  • Erlendur Jónsson gaf árið 1984 út bókina Frumhugtök rökfræðinnar (endurútg. 1992 og 1996) sem er íslensk kennslubók og um leið kynningarrit á formlegri rökfræði. Þar eru kynnt þau grundvallarhugtök er nútíma rökfræði styðst við svo og notkun þeirra bæði í umsagnarrökfræði og setningarrökfræði.
  • Þrætubók er á íslensku haft um kennslubók um heimspekilega rökræðu. En líka ádeilurit og (fræðilega) deilu. En umfram allt um þráttarhyggju (díalektík). Orðið tölubók var á íslensku áður fyrr haft um ræðufræði en líka almennt um mælskulist.

Tilvísanir

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Logic“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 22. nóvember 2005.
  • Gabbay, D.M. og Guenthner, F. (ritstj.) 2001-2005. Handbook of philosophical logic (2. útg.). 13 bindi. Dordrecht, Kluwer.
  • Hilbert, D. og Ackermann, W., 1928. Grundzüge der theoretischen Logik. Springer-Verlag, ISBN 0-8218-2024-9.
  • Hodges, W., 2001. Logic. An introduction to elementary logic. Penguin Books.
  • Hofweber, T., 2004. „Logic and Ontology“. Í Stanford Encyclopedia of Philosophy.
  • Hughes, R.I.G., (ritstj.), 1993. A Philosophical Companion to First-Order Logic. Hackett Publishing Company.
  • Kneale, W. og Kneale, M., 1962/1988. The Development of Logic. Oxford University Press, ISBN 0-19-824773-7.
  • Lemmon, E.J., 1978. Beginning Logic. Hackett.
  • Priest, G., 2004. „Dialetheism“. Í Stanford Encyclopedia of Philosophy.
  • Putnam, H., 1969. Is Logic Empirical?. Boston Studies in the Philosophy of Science, vol V.
  • Read, Stephen, 1995. Thinking About Logic. An Introduction to the Philosophy of Logic. Oxford University Press.
  • Smith, B., 1989. Logic and the Sachverhalt, The Monist 72 (1): 52-69.

Tengt efni

Tenglar

  • „Hvers vegna er rökfræðin svona flókin og hver er tilgangurinn með henni?“. Vísindavefurinn.
  • „Reglur rökvíslegrar hugsunar“; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1987
  • „Rökfræði“; grein í Tímariti Hins íslenska bókmenntafélags 1891

Erlendir

Tags:

Rökfræði Óformleg, formleg, táknleg, heimspekileg og stærðfræðileg rökfræðiRökfræði Eitt og annaðRökfræði TilvísanirRökfræði HeimildirRökfræði Tengt efniRökfræði TenglarRökfræðiHeimspeki

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslenskir stjórnmálaflokkarKristnitakan á ÍslandiNúmeraplataAtviksorðHvannadalshnjúkur24. aprílHlíðarfjallListi yfir íslensk mannanöfnNiklas LuhmannSvampdýrHelga ÞórisdóttirBenito MussoliniSkynfæriFerskeytlaHávamálKúrdistanListi yfir íslenska myndlistarmennÞjóðveldiðInnflytjendur á ÍslandiEvrópusambandið2000BridgeportSam WorthingtonHrossagaukurVerg landsframleiðslaAlþingiStærðfræðiParísÁsgeir TraustiMads MikkelsenVerzlunarskóli ÍslandsFIFOÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaÁfengisbannLjóðstafirBólusóttÁsdís Rán GunnarsdóttirKristján frá DjúpalækÁbendingarfornafnLuciano PavarottiTeboðið í BostonListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurPortúgalÍslenski hesturinnLýðhyggjaBreska samveldiðHeimspeki 17. aldarVafrakakaÓðinnVísindavefurinnSystem of a DownSkákEnglar alheimsins (kvikmynd)Kristján EldjárnNærætaKnattspyrna á ÍslandiBikarkeppni karla í knattspyrnuFallbeygingSvartfjallalandTáknMjaldurRáðherraráð EvrópusambandsinsHrafnKristrún FrostadóttirLitáískaSiðblindaLiverpool (knattspyrnufélag)LitningurHalla TómasdóttirLettlandSjómannadagurinnStríðKnattspyrnufélagið ValurBíldudalurKanadaBankahrunið á ÍslandiInternetið🡆 More