Hungursneyðin Í Sovét-Úkraínu

Hungursneyðin í Sovét-Úkraínu eða Holodomór (hið upphaflega úkraínska heiti, dregið frá moryty holodom („myrt með hungri“)) var hungursneyð af mannavöldum í Sovét-Úkraínu árin 1932 og 1933 sem dró milljónir Úkraínumanna til dauða.

Á þessum árum geisaði hungursneyð á þeim svæðum Sovétríkjanna sem framleiddu korn. Ástæður þess voru líklega blanda margra þátta: dræmrar uppskeru vegna þurrka, aukinnar eftirspurnar vegna iðnvæðingar, vegna lélegs skipulags á samyrkjubúskap, útflutnings á korni, og vegna stjórnarstefnu ríkisins.

Hungursneyðin Í Sovét-Úkraínu
Svæði í Sovétríkjunum sem fóru hvað verst út úr hungursneyðinni 1933. Svæði A eru neytendur korns, svæði B eru framleiðendur korns.
Hungursneyðin Í Sovét-Úkraínu
Svelt fólk á götum úti.
Hungursneyðin Í Sovét-Úkraínu
Viðurkenning ríkja á hungursneyðinni sem þjóðarmorði:
  Opinberlega viðurkennd sem þjóðarmorð
  Opinberlega fordæmd sem útrýmingaraðgerð
  Ekki opinberlega viðurkennd sem þjóðarmorð

Ástandið dró á milli 3,3 til 7,5 milljónir Úkraínumanna til dauða.

Viðurkenning á hungursneyðinni sem þjóðarmorði

Sumir telja að hungursneyðin hafi verið skipulögð af Jósef Stalín leiðtoga Sovétríkjanna til að útrýma sjálfstæðishreyfingu Úkraínumanna. Undir miðstýringu Stalíns voru hvers kyns framleiðendum, korn-framleiðendum þar með töldum, settir kvótar á framleiðslu sína. Korn-framleiðendum voru settir háir framleiðslukvótar þrátt fyrir lélega uppskeru og leiddi það til hungusneyðar sem var leyft að versna. Ríkisstjórnin afþakkaði mataraðstoð erlendis frá og fólki var ekki leyft að flytja milli landsvæða. Vegna þessara þátta er hungusneyðin stundum nefnd þjóðarmorð, en það er umdeilt. Í dag viðurkennir ríkisstjórn Úkraínu ásamt 15 öðrum ríkjum hungursneyðina sem þjóðarmorð. Með notkun orðsins Holodomór er reynt að undirstrika manngerða hluta hungursneyðarinnar.

Alþingi Íslendinga samþykkti ályktun um að hungursneyðin hefði verið þjóðarmorð þann 23. mars árið 2023.

Tilvitnanir

Tags:

HungursneyðIðnvæðingKornSamyrkjubúskapurSovét-ÚkraínaSovétríkinÚkraínskaÚtflutningurÞurrkar

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Forsetakosningar á Íslandi 2016BæjarbardagiGoogle ChromeRauðhólarLeigubíllWikiHeiðlóaSjómílaBerlínAl Thani-máliðKnattspyrnufélagið ValurKristniAuður djúpúðga KetilsdóttirFenrisúlfurSam WorthingtonSigríður Hrund PétursdóttirEignarfornafnPharrell WilliamsReikistjarnaHollandJörundur hundadagakonungurLondonBorgKríaRíkisstjórn ÍslandsBarselónaPompeiiSauryHernám ÍslandsNærætaFóstbræður (sjónvarpsþættir)PáskadagurFlatormarKrónan (verslun)DýrafjörðurGoðorðTaubleyjaIstanbúlSaga ÍslandsHalla Hrund LogadóttirÍslenskt mannanafnÍsbjörnSovétríkinThomas JeffersonFrumlagHáhyrningurÞjóðveldiðBjörn Ingi HrafnssonSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirSteypireyðurUmhverfisáhrifDýrSamskiptakenningarÁbrystirMargrét ÞórhildurStjórnarráð ÍslandsThe Tortured Poets DepartmentDanmörkKórónaveirufaraldurinn 2019–2023 á ÍslandiGuðlaugur ÞorvaldssonVestfirðirNorræna (ferja)MinkurKatrín JakobsdóttirDauðarefsingStöð 2Bubbi MorthensNjáll ÞorgeirssonUndirskriftalistiListi yfir lönd eftir mannfjöldaPeter MolyneuxSvíþjóðBrjóskfiskarAsíaWiki FoundationSveppir🡆 More