Fransín: Frumefni með efnatáknið Fr og sætistöluna 87

Fransín er frumefni með efnatáknið Fr og er númer 87 í lotukerfinu.

  Sesín  
Fransín Radín
   
Efnatákn Fr
Sætistala 87
Efnaflokkur Alkalímálmur
Eðlismassi 1870,0 kg/
Harka Ekki vitað
Atómmassi 223,0197307 g/mól
Bræðslumark 300,2 K
Suðumark 950,0 K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast efni
Lotukerfið

Þetta er mjög geislavirkur alkalímálmur sem finnst í úran- og þóríngrýti.

Saga og almenn einkenni

Marguerite Perey frá Curie-stofnuninni í París uppgötvaði þetta frumefni, sem nefnt er eftir Frakklandi, árið 1939. Fransín er þyngsti alkalímálmurinn og verður til við alfahrörnun aktiníðs. Einnig er hægt að framleiða það með því að láta róteindir dynja á þóríni.

Þó að það verði til í náttúrunni í úrangrýti, er áætlað að einungis séu til um 30 grömm af fransíni í jarðskorpunni. Það er óstöðugast af fyrstu 101 frumefnunum og hefur hæstu jafngildu þyngd allra frumefna.

Þekkt er 41 samsæta af fransíni. Sú langlífasta, 223Fr, er dóttursamsæta 227Ac, hefur helmingunartíma upp á 22 mínútur og er eina samsæta fransíns sem finnst í náttúrunni. Allar samsætur fransíns eru gríðarlega óstöðugar og þess vegna hafa eingöngu verið hægt að mæla eiginleika þess með geislaefnafræðilegum hætti.

Örfáar myndir hafa verið teknar af fransíni en aðeins af litlu magni þess, mest 200.000 atómum í hvert sinn. Myndirnar voru teknar með því að fanga atómin og nota sérstaka flúrljómunarmyndavél.

Tags:

AlkalímálmurEfnatáknFrumefniGeislavirkniLotukerfiðÚranÞórín

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

RafeindGaleazzo CianoSpendýrKvennafrídagurinnBiblíanÍslenskt mannanafnAriel HenryHelga ÞórisdóttirHjartaÍslenski þjóðhátíðardagurinnAnna FrankBelgíaÞóra ArnórsdóttirEldgosið við Fagradalsfjall 2021Litla hryllingsbúðin (söngleikur)Gunnar NelsonHöfundarrangurVerkfallHávamálMegasOrlando BloomOMX Helsinki 25Forsætisráðherra ÍslandsMinkurAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)EfnafræðiFallorðOrkustofnunAðalstræti 10Guðmundar- og GeirfinnsmáliðGeirfuglHrúðurkarlarNorðurlöndinFrosinnÁsdís Rán GunnarsdóttirGæsalappirSagnorðGísla saga SúrssonarMegindlegar rannsóknirÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaEvrópaMesópótamíaFrjálst efniForsetakosningar á Íslandi 2020Gunnar HelgasonKötturBjörn Sv. BjörnssonTígullBrennuöldSvalbarðiListi yfir íslensk póstnúmerLeigubíllMeistaradeild EvrópuEinar Már GuðmundssonSamskiptakenningarSkammstöfunBacillus cereusHeklaÁsatrúarfélagiðListi yfir fugla ÍslandsHallgrímur PéturssonFriðrik DórRafmagnStykkishólmurSódóma ReykjavíkÍtalíaLissabonBragfræðiForsetakosningar á Íslandi 2016Jóhannes Páll 1.Íslamska ríkiðBerserkjasveppurSveitarfélög ÍslandsListi yfir íslensk skáld og rithöfundaSkjaldarmerki Íslands🡆 More