16. September: Dagsetning

16.

ÁgúSeptemberOkt
SuÞrMiFiLa
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
2930
2024
Allir dagar

september er 259. dagur ársins (260. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 106 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1345 - Jóhann 5. varð hertogi af Bretagne, fimm ára að aldri, en móðir hans, Jóhanna af Flæmingjalandi, stýrði Montfort-arminum í Bretónska erfðastríðinu þar til hann varð fullveðja.
  • 1380 - Karl 6. Frakkakonungur (f. 1368) tók við ríki eftir lát föður síns, Karls 5.
  • 1408 - Síðustu heimildir um norræna menn á Grænlandi geta um brúðkaup í kirkjunni í Hvalsey þennan dag.
  • 1464 - Pietro Barbo varð Páll 2. páfi.
  • 1508 - Ferja sökk á Ölfusá með tugi manna og fórust yfir 30 manns, sem voru að koma frá krossmessu í Kaldaðarnesi í Flóa, en þar var kross, sem var einn merkasti kirkjugripurinn í kaþólskri tíð á Íslandi. Krossinn var tekinn niður og eyðilagður eftir siðaskiptin.
  • 1607 - Floti Mölturiddara og Flórensbúa rændi borgina Hippone á strönd Alsír til að hefna sjórána.
  • 1621 - Svíar unnu borgina Ríga frá Pólverjum.
  • 1666 - Shabbetaï Zevi snerist til íslam frammi fyrir Tyrkjasoldán.
  • 1678 - Brandenborgarar lögðu Rügen undir sig.
  • 1761 - Ólafur Stephensen og Sigríður Magnúsdóttir voru gefin saman í hjónaband í Leirárkirkju.
  • 1761 - Sjö ára stríðið: Rússar náðu prússnesku borginni Kolberg á sitt vald.
  • 1810 - Mexíkó lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni.
  • 1893 - Lög voru staðfest, sem tóku Austur-Skaftafellssýslu undan Suðuramti og lögðu hana til Austuramtsins.
  • 1936 - Vísindamaðurinn Jean-Baptiste Charcot fórst ásamt 37 öðrum skipverjum þegar rannsóknaskipið Pourquoi-pas? fórst í ofviðri í skerjagarðinum við Álftanes á Mýrum.
  • 1940 - Tvö íslensk skip, Arinbjörn hersir og Snorri goði, björguðu um 400 manns af franska flutningaskipinu Asca, en það fórst á Írlandshafi eftir árás þýskrar flugvélar.
  • 1944 - Sprengjuflugvél frá bandaríska flughernum með tíu manna áhöfn brotlenti ofarlega á norðanverðum Eyjafjallajökli. Eftir tveggja daga vist í flakinu náði áhöfnin að ganga niður af jöklinum við illan leik og komast til byggða.
  • 1963 - Lyndon B. Johnson, varaforseti Bandaríkjanna, kom til Íslands í opinbera heimsókn og var vel tekið.
  • 1970 - Hussein, konungur Jórdaníu setti herlög í landinu til að hindra palestínska uppreisnarmenn í að ná þar völdum.
  • 1975 - Papúa-Nýja Gínea fékk sjálfstæði frá Ástralíu.
  • 1976 - Blýantanóttin: Hópi námsmanna var rænt af útsendurum herforingjastjórnarinnar í Argentínu. Þau voru síðan pyntuð og flest þeirra myrt að talið er.
  • 1979 - Minnisvarði var afhjúpaður á Hólmavík um Hermann Jónasson ráðherra, sem var í áraraðir þingmaður Strandamanna og Vestfirðinga.
  • 1981 - Fyrsti þátturinn í þáttaröðinni Pósturinn Páll var sendur út á BBC1.
  • 1982 - Blóðbaðið í Shabra og Shatila hófst þegar Líbanski framvörðurinn réðist inn í flóttamannabúðir í Beirút og myrti milli 762 og 3500 manns.
  • 1983 - Ronald Reagan tilkynnti að GPS-staðsetningarkerfið yrði opnað fyrir almenna notendur.
  • 1984 - Langholtskirkja var vígð í Reykjavík.
  • 1984 - Fyrsti kafli kvikmyndaraðarinnar Heimat eftir Edgar Reitz kom út í Þýskalandi.
  • 1985 - Líkamsræktarsalurinn World Class hóf starfsemi í Skeifunni í Reykjavík.
  • 1989 - Erró gaf Reykjavíkurborg tvö þúsund listaverk eftir sig og var safninu komið fyrir á Korpúlfsstöðum.
  • 1991 - Allar ákærur gegn Oliver North vegna þátttöku hans í Íran-Kontrahneykslinu voru felldar niður.
  • 1992 - Svarti miðvikudagurinn: Ítalska líran og breska pundið voru felld út úr gengissamstarfi Evrópu.
  • 1993 - Fyrsti þáttur bandarísku þáttaraðarinnar Frasier var sendur út á NBC.
  • 1994 - Danska leiðsögumanninum Louise Jensen var rænt, henni nauðgað og hún myrt að lokum af þremur breskum hermönnum á Kýpur.
  • 1999 - Íbúðasprengjurnar í Rússlandi: 17 létust þegar bílsprengja sprakk við fjölbýlishús í Volgodonsk.
  • 2000 - Úkraínski blaðamaðurinn Georgíj Gongadse sást síðast á lífi.

Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íslenski þjóðhátíðardagurinnAlþýðuflokkurinnGrikklandJakob Frímann MagnússonVanúatúVinstrihreyfingin – grænt framboðÞór/KAKróatíaMinkurIngólfur ArnarsonSkjaldarmerki ÍslandsLandselurListi yfir forsætisráðherra ÍslandsReykjanesbærSpánnBrasilíaForsætisráðherra ÍslandsMalaríaVigdís FinnbogadóttirHallgerður HöskuldsdóttirWikivitnunGunnar Theodór EggertssonKjarnorkuárásirnar á Hiroshima og NagasakiLönd eftir stjórnarfariTyrkjaveldiÞungunarrofSkyrBreiðholtSumardagurinn fyrstiFyrri heimsstyrjöldinÍtalíaDýrafjörðurByggðasafn ReykjanesbæjarEvrópusambandiðHvalveiðarAl Thani-máliðForsetakosningar á Íslandi 2024UpplýsingatækniCharles DarwinKjarnorkuvopnUndirskriftalistiForingjarnirYfirborðsflatarmálNorskaLars PetterssonJurtIcesaveNorðurlöndinRagnarökMagnús Geir ÞórðarsonFornafnFrumtalaAlþingiskosningar 2021TáknSameinuðu þjóðirnarVeik beygingÁsatrúarfélagiðMegasHerdís ÞorgeirsdóttirHringadróttinssagaPóllandDanmörkMannshvörf á ÍslandiVörumerkiSkrápdýrListi yfir íslensk póstnúmerHellhammerSam WorthingtonRómaveldiSönn íslensk sakamálViðtengingarhátturBrisPrótínmengiRúnirKöttur20. öldin🡆 More