Kalín, eða kalíum (latína: kalium úr arabísku: القَلْيَه al-qalyah „jurtaaska“, orðið alkalí er af sömu rót) er frumefni með efnatáknið K og er númer nítján í lotukerfinu.
Þetta er mjúkur, silfurhvítur, málmkenndur alkalímálmur sem í náttúrunni finnst aðeins sem jónískt salt, bundinn öðrum frumefnum í sjó og mörgum steinefnum.
Natrín | |||||||||||||||||||||||||
Kalín | Kalsín | ||||||||||||||||||||||||
Rúbidín | |||||||||||||||||||||||||
|
Kalín er nauðsynlegt virkni frumna í öllum lífverum og finnst því í vefjum bæði dýra og jurta, sérstaklega í jurtafrumum þar sem mestur þéttleiki kalíns er í ávöxtum. Kalín oxast fljótt í lofti, er mjög hvarfgjarnt, sérstaklega í snertingu við vatn, og líkist natríni efnafræðilega.
Kalín er eðlisléttara en vatn og annar léttasti málmurinn, á eftir litíni. Það er mjúkt, fast efni sem auðveldlega má skera með hníf og er silfrað á litinn þegar yfirborðið er tært. Það oxast hratt þegar það kemst í snertingu við loft og verður því að geyma það í jarð- eða steinolíu.
Líkt og aðrir alkalímálmar hvarfast kalín af miklum krafti við vatn og myndar þá vetni. Ef því er dýft í vatn getur kviknað í því sjálfkrafa. Sölt þess gefa frá sér fjólubláan lit ef þau eru sett í eld.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kalín, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.