Jonas Erik Altberg (betur þekktur sem Basshunter) er sænskur söngvari, tónlistarframleiðandi, og plötusnúður.
Hann fæddist 22. desember 1984 í bænum Halmstad í Suður-Svíþjóð.
Basshunter | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | 22. desember 1984 |
Uppruni | Halmstad |
Ár virkur | 1998 – í dag |
Vefsíða | basshunter.se |
Basshunter kallar tónlistina sína evrópudans eða melódískt trans, en aðrir vilja flokka hana sem harðdans eða evrópu-popp. Hann byrjaði að semja tónlist árið 2001 með forritinu „Fruity Loops (Útgáfu 6)“ og árið 2004 gaf hann út fyrstu plötuna, The Bassmaschine á internetinu.
Í apríl 2006 gerði hann útgáfusamning við Warner Music í Svíþjóð sem gaf út smáskífuna "Boten Anna" og lagið hans "Boten Anna" varð strax orðið að smelli í Skandínavíu í maí sama ár. Lagið dreifðist hratt um internetið og hefur verið þýtt á mörg tungumál.
Basshunter taldi upphaflega að Anna í laginu væri „botti“ á IRC-rás en í raun reyndist Anna bara vera venjuleg stúlka og lagið fjallar um þennan skemmtilega misskilning.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Basshunter, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.