3. Júní: Dagsetning

3.

MaíJúníJúl
SuÞrMiFiLa
1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30
2024
Allir dagar

júní er 154. dagur ársins (155. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 211 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 1098 - Fyrsta krossferðin: Antíokkía féll í hendur krossfara eftir 8 mánaða umsátur.
  • 1140 - Franski fræðimaðurinn Pierre Abélard var ákærður fyrir trúvillu.
  • 1326 - Hólmgarðssáttmálinn batt endi á Sænsk-hólmgersku stríðin.
  • 1605 - Hogenskild Bielke var hálshöggvinn fyrir þátttöku í samsæri gegn Karli 9. í Svíþjóð.
  • 1620 - Bygging elstu steinkirkju í franska hluta Norður-Ameríku hófst í Quebec í Kanada.
  • 1644 - Li Zicheng lýsti sjálfan sig keisara Kína.
  • 1654 - Loðvík 14. var krýndur konungur Frakklands í Rheims.
  • 1746 - Húsagatilskipunin gefin út á Íslandi. Þar var kveðið á um réttindi og skyldur húsbænda og hjúa og einnig ákvæði um uppeldi barna.
  • 1800 - John Adams, forseti Bandaríkjanna, tók sér lögheimili í Washington, D.C. Hvíta húsið var þó ekki tilbúið.
  • 1844 - Síðustu tveir geirfuglarnir sem vitað er um voru veiddir í Eldey.
  • 1848 - Peter Duus keypti verslunina í Keflavík af Martin Smith á 3.700 ríkisdali.
  • 1866 - Pétur Pétursson vígður biskup. Hann var áður forstöðumaður prestaskólans.
  • 1889 - Austur- og vesturströnd Kanada voru tengdar saman með lestarteinum.
  • 1926 - Fílharmoníuhljómsveit Hamborgar undir stjórn Jóns Leifs, tónskálds, hélt tónleika í Iðnó í Reykjavík og voru þeir sagðir mesti listviðburður í sögu landsins.
  • 1932 - Ríkisstjórn undir forsæti Ásgeirs Ásgeirssonar tók við völdum.
  • 1937 - Flugfélag Akureyrar var stofnað, er síðar varð Flugfélag Íslands, hið þriðja með því nafni. Það sameinaðist síðar Loftleiðum og myndaði Flugleiðir.
  • 1946 - Fimm fórust og fimmtíu manns misstu heimili sín í miklum eldsvoða á Ísafirði.
  • 1950 - Annapurna, 10. hæsta fjall heims, var klifið í fyrsta sinn.
  • 1951 - Bjarni Jónsson dómprófastur kvaddi söfnuð sinn í Dómkirkjunni í Reykjavík eftir 41 árs þjónustu. Talið er að hann hafi unnið fleiri prestsverk en nokkur annar hér á landi. Hann mun hafa jarðsungið yfir 6000 manns.
  • 1951 - Fyrsta óperan var sett upp í Þjóðleikhúsinu: Rigoletto eftir Verdi.
  • 1955 - Ein fyrsta ísbúð á landinu var opnuð: Dairy Queen við Hjarðarhaga í Reykjavík.
  • 1968 - Valerie Solanas reyndi að drepa Andy Warhol með því að skjóta hann þrisvar.
  • 1974 - Menntaskólinn á Ísafirði útskrifaði fyrstu stúdentana.
  • 1977 - Bob Marley and the Wailers gáfu út breiðskífuna Exodus, sem síðar var valin „breiðskífa aldarinnar“ af tímaritinu Time Magazine.
  • 1979 - Olíublástur varð í könnunarholu í Campeche-flóa.
  • 1983 - Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík var komið á fót með 12 sérþjálfuðum mönnum.
  • 1984 - Ronald Reagan heimsótti þorpið Ballyporeen á Írlandi þaðan sem forfeður hans eru.
  • 1987 - Verkamannaflokkur Vanúatú var stofnaður.
  • 1989 - Jóhannes Páll 2. páfi kom til Íslands og söng meðal annars messu við Landakotskirkju. Þúsundir sóttu þá messu.
  • 1989 - Átök brutust út milli Úsbeka og Tyrkja í Sovétlýðveldinu Úsbekistan. 100 létust í átökunum sem stóðu til 15. júní.
  • 1991 - Unzenfjall í Japan gaus með þeim afleiðingum að 43 fórust í gjóskuhlaupi.
  • 1992 - Heimsráðstefna Sameinuðu þjóðanna um umhverfi og þróun var sett í Rio de Janeiro í Brasilíu.
  • 1997 - Lionel Jospin varð forsætisráðherra Frakklands.
  • 1998 - Lestarslysið í Eschede: Yfir 100 létust þegar hraðlest fór út af teinunum milli Hannóver og Hamborgar í Þýskalandi.
  • 2001 - Alejandro Toledo var kjörinn forseti Perú.
  • 2006 - Svartfjallaland lýsti yfir sjálfstæði.
  • 2008 - Hvítabjörn sást á Þverárfjalli í Skagafirði og var felldur.
  • 2011 - Forseti Jemen, Ali Abdullah Saleh, særðist í sprengjuárás sem gerð var á mosku í forsetahöllinni.
  • 2012 - 153 fórust þegar Dana Air flug 992 hrapaði á byggingu í Lagos í Nígeríu.
  • 2014 - Bashar al-Assad var kjörinn forseti Sýrlands með 88% atkvæða þrátt fyrir borgarastyrjöldina í landinu.
  • 2017 - Árásin á Lundúnabrú: Þrír hryðjuverkamenn óku á vegfarendur og réðust síðan á fólk með hnífum. Þeir myrtu 8 áður en lögregla skaut þá til bana.
  • 2018 - Yfir hundrað létu lífið þegar eldfjallið Volcán de Fuego gaus í Gvatemala.
  • 2019 - Blóðbaðið í Kartúm: Yfir 100 mótmælendur voru drepnir þegar stjórnarhermenn og Janjaweed-hópar réðust á búðir mótmælenda í Kartúm, Súdan.
  • 2019 - Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf opinbera heimsókn sína til Bretlands.


Fædd

Dáin

Tags:

Gregoríska tímataliðHlaupárSólarhringurÁr

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

MaríubjallaHefðarfrúin og umrenningurinnPsychoBorgaralaunÚrkomaHeimildinLaugardalshöllÞunglyndislyfBaltasar KormákurHaustForsetakosningar á Íslandi 2004Friðrik Sophusson66°NorðurDraugaslóðMeistaradeild EvrópuBónusSamfylkinginOttawaÁfengiJörðinRétt röksemdafærslaSuðurskautslandiðForsetakosningar á Íslandi 2020KrossferðirNürnberg-réttarhöldinGuðrún Eva MínervudóttirHringur (rúmfræði)Kyn (líffræði)Steinunn Ólína ÞorsteinsdóttirForseti AlþingisHelsinkiHnúfubakurListi yfir íslenska sjónvarpsþættiAuður JónsdóttirTölvusneiðmyndMarglytturUppstigningardagurÓlafur Darri ÓlafssonTáknDóri DNAJarðhitiMynsturLýðstjórnarlýðveldið KongóSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022LjóðstafirEivør PálsdóttirÍslamRóbert WessmanÖræfasveitRio FerdinandÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaSkógafossRókokóSýslur ÍslandsHerbert GuðmundssonLitáenJón TraustiEldfellEigindlegar rannsóknirSumarólympíuleikarnir 1920Gunnar Smári EgilssonRúnirÓðinnNorðurland vestraLeðurblökurSuður-AfríkaÚtvarpsþátturØEyjaálfaSvínhvalirHeySíminnElijah WoodPalaúGoogle Translate🡆 More