Þessi síða fjallar um áreiðanlegar heimildir.
Heimildaskráning er mikilvæg fyrir Wikipediu, til að auka trúverðugleika ritsins. Allt efni á Wikipediu verður að vera sannreynanlegt og má ekki fela í sér frumrannsóknir. Notkun heimilda hjálpar til við að tryggja að svo sé. Greinar á Wikipediu ættu enn fremur að minnast á öll mikilvæg sjónarmið, þar með talin minnihlutasjónarmið, sem birst hafa í traustum heimildum. Sjá Wikipedia:Hlutleysisreglan.
En það eru ekki allar heimildir jafn traustar. Greinar á Wikipediu ættu að styðjast við viðurkenndar og traustar, óháðar heimildir. Traustar heimildir eru þær sem gefnar eru út með traustsverðu útgáfuferli, svo sem ritrýni, og höfundar þeirra njóta einhvers konar viðurkenningar á því sviði sem um ræðir (gegna til dæmis prófessorsstöðu o.s.frv.). Heimildir ættu að styðja fullyrðingar í greinum Wikipediu. Ef engar heimildir eru um eitthvert efni, þá ætti Wikipedia ekki að hafa grein um það.
Greinar ættu að styðjast við áreiðanlegar, óháðar, útgefnar heimildir sem njóta einhvers konar viðurkenningar. Óáreiðanlegar heimildir eru meðal annars heimildir sem höfundur gefur út á eigin vegum, bloggsíður (oftast nær) og hvers kyns vefsíður sem óljóst er hver heldur uppi.
Vert er að geta þess að Wikipedia er ekki óháð heimild. Þess vegna er ekki hægt að styðja fullyrðingu í einni grein á Wikipediu með tilvísun í aðra grein á Wikipediu, hvort sem það er grein á íslensku eða öðru tungumáli. Síðarnefnda Wikipediu-greinin, sem á að styðja þá fyrrnefndu, er engu traustari en sú fyrri ef ekki er vísað í óháðar heimildir í henni. En ef það er vísað í heimildir í síðarnefndu greininni, þá er einnig hægt að vísa í þær sömu heimildir í fyrrnefndu greininni svo að notkun einnar greinar á Wikipediu til þess aðstyðja fullyrðingar í annarri grein á Wikipediu er hvort tveggja í senn ófullnægjandi og ónauðsynlegt.
Margar greinar á Wikipediu fjalla um fræðilegt efni og styðjast við fræðilegar heimildir. Venjulega eru fræðilegar heimildir og ritrýndar heimildir áreiðanlegustu heimildir sem völ er á. Stundum getur það þó gerst að fræðileg heimild verður umdeild eða jafnvel úrelt þegar rannsóknum fleygir fram. Valið á viðeigandi heimildum veltur á samhenginu.
Ágætt getur verið að nota fréttamiðla sem heimildir, einkum ef fréttamiðillinn sem um ræðir hefur gott orð á sér. Dæmi um slíka miðla eru The Washington Post, The New York Times og The Associated Press. Aðrir miðlar hafa orð á sér fyrir að vera óáreiðanlegir og þá ber að forðast. Nokkur varnaðarorð:
Nota má efni sem gefið er út á eigin vegum höfundarins í sumum tilvikum en þó ber að hafa varann á. Hafa ber í huga að ef upplýsingarnar eru þess virði að á þær sé minnst, þá er að öllum líkindum minnst á þær í einhverri áreiðanlegri og óháðri heimild.
Gagnasöfn | Tímaritasöfn |
---|---|
Britannica Online | EBSCOhost |
Greinasafn Morgunblaðsins* | ProQuest 5000 International |
Grove Art | Wiley (Blackwell Synergy) |
Grove Music | Elsevier |
Web of Science | ScienceDirect |
Karger Online | |
Sage Premier | |
* - með 3ja ára birtingartöf | SpringerLink |
Frá því á árinu 1999 hafa allir þeir sem eru nettengdir á Íslandi haft svokallaðan landsaðgang að völdum rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Í Landsaðgangi eru heildartextar um 21.000 tímarita og um 10.000 tímarit með útdráttum greina en einnig má finna rafbækur frá Springer í Landsaðgangi. Talsverð skörun er á titlum í EBSCOhost, ProQuest og öðrum söfnum. Mörg þessara tímarita eru leiðandi fagtímarit á sínu sviði og þar af leiðandi ákjósanlegar sem heimildir. Hægt er að leita í tímaritalista á vef Landsaðgangsins - hvar.is, að ákveðnum tímaritum. Sem dæmi má nefna að hægt er að nálgast blöð bandaríska dagblaðsins The New York Times frá 1. júní 1980 og til dagsins í dag á vef ProQuest og þar er einnig hægt að binda leit við það blað. Svo annað dæmi sé tekið eru tölublöð Chemical Engineering, fagtímarits í efnaverkfræði, aðgengileg frá 1987. Þriðja dæmið, valið af handahófi, gæti verið tímaritið Journal of Popular Music Studies, sem er aðgengilegt frá árinu 1988.
Af innlendum vettvangi má benda á vefinn Tímarit.is - stafrænt bókasafn Landsbókasafns Íslands. Á honum má finna ljósmynduð afrit af yfir 4,5 milljónum blaðsíðna af blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Meðal þess efni sem þar má finna eru blöð eins og Morgunblaðið (og Lesbók Morgunblaðsins), Ísafold, Alþýðublaðið, Tíminn og Þjóðviljinn. Tímarit eins og Frjáls verslun, Náttúrufræðingurinn og Vísbending er þar einnig að finna.
Loks má benda á vef Skemmunar en þar er að finna safn lokaritgerða nemenda við háskóla landsins sem mörg hver eru opin almenningi. Þar er einnig að finna rannsóknir starfsmanna háskólanna, sem dæmi hefur Þjóðarspegill Félagsvísindastofnunar verið settur inn á Skemmuna. Þjóðarspegillinn er árleg ráðstefna á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem „er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í rannsóknum í félagsvísindum á Íslandi ár hvert.“ Enn má nefna íslensk fræði- og fagrit sem eru ókeypis á netinu:
Heiti | Svið |
---|---|
Stjórnmál og stjórnsýsla | Vefrit Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála |
Bókasafnið | Blað Upplýsingar: Félags bókasafns- og upplýsingafræða |
Mánaðarblaðið Faxi | Staðbundið blað Málfundafélagsins Faxa í Keflavík (64.-73. árgangar) |
Læknablaðið | Blað Læknafélags Íslands |
SFR-blaðið | Blað SFR - Stéttarfélags í almannaþjónustu |
Fréttabréf ASÍ | Fréttabréf ASÍ |
Stefnir | Rit SUS |
Scandinavian Political Studies | Skandinavískt fræðirit um stjórnmál (birtar greinar 1966-2000) |
Íslenska þjóðfélagið | Tímarit félagsfræðinga |
ScieCom info | Nordic-Baltic Forum for Scientific Communication |
Vefnir | Vefrit Félags um átjándu aldar fræði. |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hjálp:Áreiðanlegar heimildir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.