Sink (úr þýsku, zinke, „hvasst, skörðótt“) er frumefni með efnatáknið Zn og er númer 30 í lotukerfinu.
Það er fyrsta frumefnið í flokki 12. Efnafræðilega svipar því til magnesíns af því að jón þess er af svipaðri stærð og eina algenga oxunartala þess er +2. Sink er 24. algengasta frumefnið í jarðskorpunni og á sér fimm stöðugar samsætur. Sink er mest unnið úr málmgrýtinu sinkblendi sem er sinksúlfíð. Stærstu námurnar eru í Ástralíu, Kanada og Bandaríkjunum. Það er unnið með fleytingu, brennslu og úrvinnslu með raflausnarmálmvinnslu.
Kopar | Sink | Gallín | |||||||||||||||||||||||
Kadmín | |||||||||||||||||||||||||
|
Sink er nokkuð hvarfgjarn málmur sem binst við súrefni og aðra málmleysingja og verkar á daufar sýrur með því að losa um vetni. Eina algenga oxunarstig sinks er +2.
Sink er fjórði algengasti málmurinn í notkun í dag, á eftir járni, áli og kopar í magni tonna framleiddum ár hvert.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sink, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.