Sahara er önnur stærsta eyðimörk heims (á eftir Suðurskautslandinu) og nær yfir 9.000.000 km² svæði, eða allan norðurhluta Afríku.
Hitinn í eyðimörkinni getur náð 57°C yfir daginn og farið undir frostmark á nóttunni. Sahara er um 2,5 milljón ára gömul. Nafnið kemur frá arabíska orðinu yfir eyðimörk; صحراء (ⓘ).
Sahara skiptist milli landanna Marokkó, Túnis, Alsír, Líbíu, Vestur-Sahara, Máritaníu, Malí, Níger, Tjad, Egyptalands og Súdan. Hún nær samfellt 4.000 km frá Atlantshafi í vestri að Rauðahafi í austri, ef Nílardalur er undanskilinn. Frá Miðjarðarhafi og Atlasfjöllum í norðri þangað sem hún mætir sléttunum í Mið-Afríku eru 2000 km. Þar verða skilin milli eyðimerkur og gróðurlendis smám saman ógreinilegri.
Á þessu svæði, sem þekur 27% af álfunni, búa um 2,5 milljónir manna með ólíka menningu, bændur, hirðingjar, veiðimenn og safnarar. Helstu þjóðarbrotin eru Túaregar, Saravar, Márar, Tíbúfólkið, Núbíumenn og Kanúrífólkið. Helstu borgir eru Núaksjott í Máritaníu, Algeirsborg í Alsír, Timbúktú í Malí, Agadez í Níger, Ghat í Líbíu og Faya í Tjad.
Í Sahara er víða að finna vatn í jörðu, og þar er fjölbreytt dýralíf.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sahara, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.