Malaría eða mýrakalda er smitsjúkdómur sem er útbreiddur í mörgum hitabeltislöndum.
Nafnið er komið af ítölsku orðunum „mala aria“, sem þýðir „slæmt loft“ sem aftur skýrist af frumstæðum misskilningi á orsökum sjúkdómssins þar sem menn héldu að slæmt loft orsakaði hann. Íslenska nafnið er síðan leitt af því að moskítóflugur verpa einkum á mýrarsvæðum eða þar sem þær finna kyrrstætt vatnsyfirborð.
Malaría veldur 1 - 3 milljónum dauðsfalla á ári, og eru það aðallega ung börn í Afríku sem látast af völdum hans. Talið er að malaría sé sá sjúkdómur sem flesta hefur lagt af velli af öllum sjúkdómum.
Orsök sjúkdómsins eru einfruma sníkjudýr af ættkvíslinni Plasmodium, ekki vírusar eða bakteríur. Snýkjudýr þessi berast á milli manna, með stungum kvenkyns moskítófluga. Karlkyns moskítóflugur nærast ekki á blóði úr mannfólki. Kvenkyns moskítóflugur fá úr blóði efni sem þær fá ekki auðveldlega annarsstaðar sem þær nota til framleiðslu frjóverpis (eggja).
Talið er að snýkjudýrið hafi komið fram á sjónvarsviðið fyrir 50-100 000 árum en fyrst náð verulegri útbreiðslu fyrir um 10 þúsund árum. Sníkjudýrin sýkja rauð blóðkorn í hýsli sínum þar sem kynlaus fjölgun á sér stað. Blóðkornin springa, snýkjudýrin losna út í blóðrásina og sýkja önnur rauð blóðkorn. Þetta veldur sótthita og blóðleysi. Í alvarlegum tilvikum getur sjúklingurinn fallið í dá og jafnvel látist í kjölfarið.
Ýmis lyf eru til sem vinna gegn malaríu svosem klórókín, atebrín, mepakrín, plasmókín, en engin þeirra eru óbrigðul og sníkjudýrið myndar í mörgum tilvikum ónæmi fyrir lyfjunum. Blóðgjöf er stundum beitt í verri tilfellum þar sem sníkjudýrið hefst við í blóðinu má að einhverju marki skipta sýkta blóðinu út og taka annað inn í staðinn. Það er þó ekki hægt að hreinsa blóðið alveg með þessum hætti og ónæmiskerfið lærir ekki jafn vel að verjast veikinni. Ekki er heldur til bóluefni við veikinni, þótt talsvert fé hafi verið lagt í rannsóknir á því á síðustu árum. Til viðbótar lyfjum sem vinna á malaríusníkjudýrinu er oft reynt að koma í veg fyrir veikina með því að fækka eða útrýma moskítóflugunum sem bera hana á milli manna og með því að koma í veg fyrir moskítóbit. Æskilegt er að forðast moskítóbit með því að bera á sig þar til gert krem við dægurskipti og mikilvægt er að sofa undir flugnaneti.
Fimm sinnum hefur læknanóbelinn verið veittur fyrir starf tengt malaríu,:
Vasco da Gama, David Livingstone, Amerigo Vespucci, Úrbanus 7. (sem átti fyrir vikið skemmstu setu á páfastóli af nokkrum páfa),
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Malaría, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.