Kelvin er SI-mælieining fyrir hita og ein af sjö grunneiningum SI-kerfisins, táknuð með K.
Úr | í | Formúla |
---|---|---|
Kelvin | Fahrenheit | °F = K · 1,8 – 459,67 |
Fahrenheit | kelvin | K = (°F + 459,67) / 1,8 |
Kelvin | celsíus | °C = K – 273,15 |
Celsíus | Kelvins | K = °C + 273,15 |
1 K = 1 °C og 1 K = 1,8 °F |
Er skilgreind út frá núllpunkti sínum sem samsvarar alkuli og einu kelvin sem er er 1/273,16 af þrípunkti vatns.
Einingin var kynnt til sögunnar árið 1954 á 10. fundi Conférence Générale des Poids et Mesures (samþykkt 3, CR 79) hún er nefnd eftir breska eðlis- og verkfræðingnum William Thomson, fyrsta Baron af Kelvin.
Celsíuskvarðinn er nú skilgreindur út frá kelvin, en 0 °C samsvara 273,15 kelvin, sem aftur er bræðslumark vatns við staðalaðstæður.
Orðið kelvin sem SI-eining er skrifað með litlum staf nema í byrjun setningar, táknið K er þó ávallt hástafur og aldrei skáletrað, bil er á milli tölunnar og táknsins líkt og með aðrar SI-einingar. Ekki er talað um „gráður á kelvin“ né heldur er gráðumerkið notað, þetta stafar af því að kelvin er, ólíkt Fahrenheit og Celsíus, mælieining en ekki kvarði. Þó var skrifað „gráður á Kelvin“ og „°K“ frá því einingin var upprunalega kynnt til sögunnar árið 1954 þar til árið 1967 þegar því var breytt á 13. fundi CGPM (samþykkt 3, CR 104).
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kelvin, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.