Fjodor Dostojevskíj: Rússneskur rithöfundur (1821-1881)

Fjodor Míkhajlovítsj Dostojevskíj (rússneska: Фёдор Миха́йлович Достое́вский) (11.

nóvember 1821 – 9. febrúar 1881) var rússneskur rithöfundur sem hafði mikil áhrif á bókmenntir 20. aldar. Verk hans lýsa oft einstaklingum á jaðri samfélagsins, vegna fátæktar eða innra andlegs ástands. Hann er oft talinn upphafsmaður tilvistarstefnunnar.

Fjodor Dostojevskíj: Rússneskur rithöfundur (1821-1881)
Málverk af Dostojevskíj eftir Vasilíj Perov um 1872.

Fyrsta bók hans, Fátækt fólk, kom út 1846. 1849 var hann handtekinn fyrir þátttöku í byltingaraðgerðum gegn Nikulási 1. keisara og sendur í þrælkunarbúðir í Omsk í Síberíu.

Hann losnaði úr fangelsi 1854 en þurfti að eyða næstu fimm árum í herþjónustu í Síberíuherdeildinni. Á þeim árum gerðist hann kristinn og varð síðar mikill andstæðingur níhílistahreyfingarinnar. 1860 sneri hann aftur til Sankti Pétursborgar þar sem hann reyndi að reka bókmenntatímarit ásamt bróður sínum Mikhaíl með litlum árangri. 1864 lést eiginkona hans og bróðir hans skömmu síðar. Við þetta sökk Dostojevskíj í þunglyndi og spilafíkn sem gerði skuldastöðu hans enn verri en hún var fyrir. Glæpur og refsing (Преступление и наказание), sem sumir telja hans besta verk, kom út sem framhaldssaga í tólf hlutum árið 1866.

1867 ferðaðist hann til Vestur-Evrópu, giftist aftur og hóf að skrifa Fávitann (Идиот). Síðustu árum sínum eyddi hann á heilsuhælum, en hann þjáðist af flogaveiki alla ævi.

Helstu verk

  • Fátækt fólk (Бедные люди) (1846)
  • Tvífarinn: Pétursborgarbálkur (Двойник. Петербургская поэма) (1846) - ísl. þýð. Vilhjálmur Þ. Gíslason, 1930; Ingibjörg Haraldsdóttir, 1994
  • Неточка Незванова (1849)
  • Село Степанчиково и его обитатели (1859)
  • Minnisblöð úr húsi dauðans (Записки из мертвого дома) (1860)
  • Униженные и оскорбленные (1861)
  • Скверный анекдот (1862)
  • Minnisblöð úr undirdjúpunum (Записки из подполья) (1864) - ísl. þýð. Ingibjörg Haraldsdóttir, 1997
  • Glæpur og refsing (Преступление и наказание) (1866) - ísl. þýð. Ingibjörg Haraldsdóttir, 1984
  • Fjárhættuspilarinn (Игрок ) (1867) - ísl. þýð. Ingibjörg Haraldsdóttir, 2004
  • Fávitinn (Идиот) (1868) - ísl. þýð. Ingibjörg Haraldsdóttir, 1987
  • Hinir óðu eða Djöflarnir (Бесы) (1872) - ísl. þýð. Arnór Hannibalsson, 1998
  • Подросток (1875)
  • Karamazov-bræðurnir (Братья Карамазовы) (1880) - ísl. þýð. Ingibjörg Haraldsdóttir, 1990-
Fjodor Dostojevskíj: Rússneskur rithöfundur (1821-1881)   Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

11. nóvember1821188120. öldin9. febrúarRússlandRússneskaTilvistarstefna

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

BræðslumarkCristiano RonaldoSúrnun sjávarSilfurbergEgill Skalla-GrímssonBoðorðin tíuTékklandGrafarvogurSuðurlandVatnajökullTíðniParadísarlautÁratugurLýðveldiLeikurHellarnir við HelluHalla Hrund LogadóttirStjórnarskráSamfylkinginMjallhvít og dvergarnir sjö (teiknimynd frá 1937)Lionel MessiÞjóðaratkvæðagreiðslaJakobína SigurðardóttirListi yfir íslensk póstnúmerLatibærBandaríkinÞór (norræn goðafræði)ÓnæmiskerfiNykurHringur (rúmfræði)Þorvaldur ÞorsteinssonViðskiptablaðiðListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHvannadalshnjúkurTíranaVantrauststillagaBerlínSiglufjörðurAxlar-BjörnJarðefnaeldsneytiHektariAnnað ráðuneyti Bjarna BenediktssonarKenoshaEldgosaannáll ÍslandsAstrópíaMoldóva17. aprílLandsvirkjunFreyjaSterk beygingHallgerður HöskuldsdóttirNáhvalurFrank HerbertEsjaBruninn í Kaupmannahöfn árið 1728AsíaLaufey Lín JónsdóttirHræringurKennimyndGuðbjörg MatthíasdóttirSkreiðGálgahraunFerstrendingurKanadaBarbie (kvikmynd)Rúnar ÞórEvrópaSeltjarnarnesJón GnarrNorðurland vestraSvíþjóðDynjandiÁstralíaBeinagrind mannsins🡆 More