Borg: Stór, þéttbýl og skipulögð varanleg búseta manna

Borg er þéttbýli sem greinist frá bæ, þorpi eða hverfi vegna stærðar, þéttleika byggðar, mikilvægis eða lagastöðu.

Engin almenn skilgreining er til á því hversu fjölmenn borg þarf að vera að lágmarki, en oft er miðað við 100.000 íbúa á samfelldu svæði þar sem þéttleiki byggðar er meiri en 1500 íbúar á ferkílómetra. Þetta er samt alls ekki algilt viðmið og fjölmörg dæmi um þéttbýli skilgreind sem borgir um víða veröld sem eru miklu fámennari. Stundum eru borgir skilgreindar sem stórt þéttbýli með eigin stjórnsýslu þar sem flestir íbúar fást við önnur störf en landbúnaðarstörf. Nútímaborgir þurfa umtalsverða innviði til að geta hýst margt fólk á litlu svæði. Til slíkra innviða teljast löggæsla, vatnsveita, fráveita, sorphirða, samgöngukerfi og samskiptakerfi. Flestar borgir hafa miðbæjarkjarna, en svefnborgir eru að meira eða minna leyti byggðar upp sem úthverfi annarrar aðliggjandi borgar. Þéttleikinn býður upp á ýmsa kosti fyrir dagleg samskipti, stjórnsýslu og hagkvæmni í framleiðslu og þjónustu; en felur líka í sér áskoranir fyrir öryggi, lýðheilsu, félagsþjónustu og umhverfi.

Borg: Stór, þéttbýl og skipulögð varanleg búseta manna
Reykjavík er venjulega talin vera eina borg Íslands. Áður var það fremur út af lagalegri stöðu hennar sem höfuðborg en stærð.
Borg: Stór, þéttbýl og skipulögð varanleg búseta manna
Íbúaþróun í þéttbýli og dreifbýli á heimsvísu frá 1960.

Lengst af í mannkynssögunni voru borgarbúar aðeins lítið brot heildarfjölda íbúa í hverju landi. Með iðnbyltingunni á 19. öld hófst hröð þéttbýlisvæðing sem smám saman hefur breiðst út um allan heim. Nú, tveimur öldum síðar, býr yfir helmingur jarðarbúa í þéttbýli, sem leiðir af sér áður óþekktar hnattrænar áskoranir. Í dag eru borgir oft hlutar stærri þéttbýlissvæða eða stórborgarsvæða þar sem borg eða borgir og margir samliggjandi minni bæir mynda samfellt atvinnu- og þjónustusvæði. Á tímum hnattvæðingar mynda þessar borgir svo tengslanet og eiga í samkeppni sem nær út fyrir staðbundið samhengi þeirra. Þetta skapar hnattrænar áskoranir sem snerta sjálfbæra þróun, loftslagsbreytingar og hnattræna heilsu. Vegna þessara áskorana er talið mikilvægt að fjárfesta í þróun sjálfbærra borga þar sem stærðarhagkvæmnin er nýtt til að draga úr vistspori íbúa. Þéttbyggð borg er stefna í borgarskipulagi sem gengur út á þetta, en auknu þéttbýli fylgja líka hætta á myndun borgarhitahólma, mengunarálag og álag á vatnsból.

Önnur mikilvæg einkenni borga eru staða þeirra sem höfuðborgir og tiltölulega löng samfelld búseta. Höfuðborgir, eins og Aþena, Beijing, Djakarta, Kúala Lúmpúr, London, Maníla, Mexíkóborg, Moskva, Naíróbí, Nýja-Delí, París, Róm, Seúl, Singapúr, Tókýó og Washington-borg eru bæði andlit viðkomandi ríkja og mikilvægur hluti af sjálfsmynd viðkomandi þjóða. Sögulegar höfuðborgir, eins og Kýótó, Yogyakarta og Xi'an, halda oft mikilvægi sínu þótt þær hafi ekki lengur stöðu höfuðborgar. Jerúsalem, Mekka, Varanasi, Ayodhya, Haridwar og Prayagraj eru dæmi um trúarlegar höfuðborgir, sem hafa sérstaka stöðu innan tiltekinna trúarbragða.

Heiti

Orðið er skylt orðunum berg og bjarg og getur líka merkt klettaveggur. Notkun orðsins yfir þéttbýlisstað er samt mjög gömul í íslensku, samanber Egils sögu og Njáls sögu þar sem talað er um Jórvík og Dyflinni sem borgir. Latneska orðið burgus merkti lítið virki. Þaðan kemur merkingin inn í fornensku og þýsku sem víggirtur bær eða kastalabær. Danska orðið borg merkir höll, en í dönsku er orðið by „bær“ notað um bæði minni bæi og borgir. Í sænsku og þýsku er orðið stad eða stadt (dregið af „kaupstaður“) notað yfir bæði bæi og borgir. Í mörgum rómönskum málum er orðið yfir borg dregið af latneska orðinu civitas sem átti upphaflega við borgararéttindi, en latneska orðið urbs merkir borg. Í mörgum löndum er ekki gerður greinarmunur á því sem í íslensku heitir annars vegar „bær“ og hins vegar „borg“.

Upphaflega merkti íslenska orðið borg virki úr steini, þá jafnan með hlöðnum veggjum (samanber líka orðin „byrgi“ og „fjárborg“). Margir staðir á Íslandi taka nafn sitt af borgum og standa sumar þeirra enn svo sem borgin ofan á Helgafelli á norðanverðu Snæfellsnesi rétt hjá Stykkishólmi. Annað orð yfir hlaðið virki er „garður“, sem er skylt rússneska og serbneska orðinu yfir borg, город gorod og grȃd. Annars er orðið yfir borg í flestum slavneskum málum dregið af frumslavneska orðinu yfir stað, město.

Tilvísanir

Borg: Stór, þéttbýl og skipulögð varanleg búseta manna   Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

BærHverfiLandbúnaðurSamgöngurSamskiptiÚthverfiÞorpÞéttbýliÞéttleiki byggðar

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Listi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999Ingvar E. SigurðssonPrag1987Sádi-ArabíaÞjóðAxlar-BjörnÞjóðminjasafn ÍslandsXi JinpingMalaríaJörundur hundadagakonungurNaustahverfiYfirborðsflatarmálSendiráð ÍslandsAlþýðusamband ÍslandsAfstæðiskenninginLeifur heppniFelix BergssonFrumtalaLærdómsöldArgentínaSkotlandHættir sagna í íslenskuKelly ClarksonBrennu-Njáls sagaVestmannaeyjarÞróunarkenning DarwinsBæjarbardagiCushing-heilkenniDuus SafnahúsStjórnarráð ÍslandsGuðbjörg MatthíasdóttirFimleikafélag HafnarfjarðarTækniskólinnApríkósaGuðjón SamúelssonStjörnustríðForseti ÍslandsPlatonIðunn SteinsdóttirForseti BandaríkjannaBjór á ÍslandiAþenaHaraldur 5. NoregskonungurJóhannes Páll 1.Kommúnistaflokkur Kína1. deild karla í knattspyrnu 1967Gunnar HelgasonLars PetterssonBjörn Ingi HrafnssonListi yfir biskupa ÍslandsHelgi Áss GrétarssonOkkarínaÍbúar á ÍslandiSnjóflóðið í SúðavíkHTMLBubbi MorthensTeboðið í BostonHesturBrjóskfiskarÞjóðernishyggjaFeneyjarRómaveldiSöngvakeppnin 2024LindýrListi yfir morð á Íslandi frá 2000HallgrímskirkjaHamskiptinBretlandReikistjarnaStari (fugl)Elvis PresleyWikipediaNafnháttur🡆 More